Strákarnir slátruðu Norðmönnum í seinni hálfleik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. janúar 2011 16:25 Snorri Steinn Guðjónsson var frábær í kvöld og skoraði sjö mörk. Mynd/Valli
Ísland braut blað í sögu sinni í kvöld er liðið vann sinn fimmta leik í röð á HM í Svíþjóð. Í kvöld unnu strákarnir okkar stórbrotinn sigur á Norðmönnum, 29-22. Ísland er því sigurvegari B-riðils með fullt hús stiga að lokinni riðlakeppninni. Strákarnir fara nú í milliriðilinn í Jönköping með fjögur stig og mæta þar Þýskalandi í fyrsta leik á laugardaginn. Þessi sigur var einkar dýrmætur því strákarnir eru nú í dauðafæri til að gera enn betri hluti á mótinu og fara enn lengra. Alveg eins og gegn Austurríki í fyrrakvöld réðust úrslitin á stórbrotinni frammistöðu íslenska landsiðsins í síðari hálfleik. Staðan að loknum hnífjöfnum fyrri hálfleik var 12-12. Eins og þær tölur bera með sér var gríðarlega hart barist í leiknum. Norðmenn náðu unditökunum í lok fyrri hálfleiks og útlitið var ekki gott þegar að Sverre fékk tveggja mínútna brottvísun í lokin. Norðmenn fengu tækifæri til að komast tveimur mörkum yfir og komu línumanninum sterka, Bjarte Myrhol, í dauðafæri. Björgvin Páll Gústavsson varði hins vegar frá honum og Ísland komst í sókn. Aron Pálmarsson skoraði þá úr erfiðri stöðu og jafnaði metin. Það var einmitt þessi barátta á báðum endum vallarins sem gaf tóninn fyrir síðari hálfleik. Strákarnir byrjuðu á því að byggja ógnarsterkarn varnarmúr sem Norðmennirnir náðu ekki að brjóta fyrr en eftir sex mínútur. Þá var Ísland komið þremur mörkum yfir. Norðmenn náðu aftur með mikilli baráttu að klóra sig aftur inn í leikinn og minnka muninn í eitt mark, 17-16, þegar sautján mínútur voru eftir. En þá hófst hreint ótrúlegur leikkafli þar sem að íslensku leikmennirnir skiptu um ham og hreinlega slátruðu grunlausum Norðmönnum. Róbert Gunnarsson, sem hafði haft svo hægt um sig, gaf tóninn með því að fiska fyrst víti og skora svo með skoti aftur fyrir bak í hraðaupphlaupi. Björgvin Páll varði eins og berserkur á þessum kafla og Ísland náði á næstum þrettán mínútum að skora þrettán mörk gegn aðeins fjórum frá Noregi. Staðan var orðin 28-20 og fjórar mínútur eftir. Leiknum var lokið. Allir strákarnir áttu frábæran dag. Enginn var þó betri en Snorri og Róbert í sókninni og Björgvin í markinu. Varnarleikurinn var sem fyrr sameiginlegt átak allrar varnarlínunnar en þeir Ingimundur og Sverre sýndu enn og aftur að það eru þeir sem gefa tóninn í þessum ógnarsterka varnarmúr. Það segir sitt að Noregur skoraði aðeins 22 mörk í leiknum, þar af aðeins tíu í seinni hálfleik. Norðmenn voru einfaldlega mát í kvöld. Leiknum var lýst beint á Boltavaktinni. Smelltu hér til að lesa hana: Ísland - Noregur. Umfjöllun er væntanleg innan skamms.Ísland-Noregur 29-22 (12-12)Mörk Íslands (Skot): Snorri Steinn Guðjónsson 7/3 (11/3), Alexander Petersson 5 (8), Aron Pálmarsson 4 (9), Guðjón Valur Sigurðsson 3 (6), Ólafur Stefánsson 3 (6), Þórir Ólafsson 3/1 (4/2), Róbert Gunnarsson 2 (2), Ingimundur Ingimundarson 1 (1), Arnór Atlason 1 (3), Björgvin Páll Gústavsson 0 (1). Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 21 (42/3, 50%), Hreiðar Levy Guðmundsson 0 (1/1).Hraðaupphlaupsmörk: 9 (Guðjón Valur 2, Alexander 2, Ólafur 2, Róbert, Ingimundur, Þórir) Fiskuð víti: 5 (Róbert 4, Guðjón Valur)Brottvísanir: 10 mínúturMörk Noregs (Skot): Havard Tvedten 7/4 (12/4), Borge Lund 6 (8), Bjarte Myrhol 4 (7), Erlend Mamelund 2 (7), Kjetil Strand 1 ( 1), Frank Löke 1 (3), Kristian Kjelling 1 (5).Varin skot: Steinar Ege 10/1 (38/5, 26%), Ole Erevik 2 (3/0, 67%).Hraðaupphlaupsmörk: 3 (Myrhol, Tvedten, Mamelund) Fiskuð víti: 4 (Myrhol 2, Strand, Einar Koren)Brottvísanir: 10 mínútur. Úrslit, staðan og næstu leikir.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira