Kiel niðurlægði Bergischer í dag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. september 2011 19:59 Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel. Nordic Photos / Bongarts
Kiel er eitt á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta sem stendur eftir átján marka stórsigur á Bergischer HC í dag, 34-18. Þá voru Íslendingar einnig á ferð í B-deildinni í Þýskalandi, sem og í Danmörku og Svíþjóð. Aron Pálmarsson skoraði ekki í dag en Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel. Liðið er með átta stig eftir fjóra leiki en Füchse Berlin og Melsungen eru einnig með fullt hús stiga en hafa aðeins spilað þrjá leiki. Meistarar Hamburg komust aftur á sigurbraut eftir að hafa tapað síðustu tveimur leikjum sínum með sigri á Eintracht Hildesheim í dag, 34-28. Björgvin Hólmgeirsson fór mikinn þegar að lið hans, DHC Rheinland, vann sigur á Düsseldorf í þýsku B-deildinni í dag, 22-19. Björgvin skoraði sex mörk fyrir Rheinland og var markahæstur. Ernir Hrafn Arnarson skoraði tvö mörk fyrir Düsseldorf. DHC Rheinland er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki, rétt eins og Minden. Düsseldorf er í sextánda sætinu með eitt stig. Í Danmörku skoraði Ólafur Guðmundsson sex mörk fyrir Nordsjælland sem tapaði þó fyrir Bjerringbro-Silkeborg, liði Guðmundar Árna Ólafssonar, í dag, 32-24. Bjerringbro-Silkeborg er í fimmta sætinu með fimm stig eftir fimm umferðir en Nordsjælland er í tólfta sæti með einungis tvö stig. Haukur Andrésson skoraði fjögur mörk fyrir Guif sem vann Skövde á útivelli, 34-30, í Svíþjóð. Kristján Andrésson, bróðir Hauks, er þjálfari liðsins. Í gær vann Drott sigur á Kristanstad, 26-22, í sömu deild en Gunnar Steinn Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir fyrrnefnda liðið. Bæði Guif og Drott hafa unnið báða leiki sína til þessa á tímabilinu í sænsku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira