Spánverjar fengu brons á HM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. janúar 2011 15:08 Spánverjar fagna sigrinum í dag. Nordic Photos / AFP
Spánn vann í dag til bronsverðlauna á HM í handbolta eftir sigur á Svíum í leik um þriðja sætið, 24-23. Leikurinn var æsispennandi eins og tölurnar bera með sér. Staðan í hálfleik var 11-11 en Spánverjar náðu að minnka muninn með glæsilegu marki Iker Romero á lokasekúndu fyrri hálfleiksins. Svíar byrjuðu betur í seinni hálfleik og náðu þriggja marka forystu, 16-13. En þá kom slæmur leikkafli hjá sænska liðinu auk þess sem að Arpad Sterbik varði vel í spænska markinu. Spánverjar skoruðu sex mörk í röð og tóku völdin í leiknum. Alberto Entrerrios skoraði 24. mark Spánar í leiknum þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka. Jonas Larholm náði að minnka muninn þegar um 40 sekúndur voru eftir en nær komust Svíarnir ekki. Spánverjar tóku leikhlé og náðu að láta leiktímann renna út í síðustu sókn leiksins. Johan Sjöstrand átti stórleik í marki Svía, þá sérstklega í fyrri hálfleik, en það dugði ekki til. Alls varði hann sautján skot í leiknum. Sterbik var einnig öflugur eins og hann hefur verið allt mótið og varði alls sextán skot. Hann átti stóran þátt í sigri Spánar í dag. Vonbrigði Svía eru mikil en þeir geta huggað sér við þann frábæra árangur að hafa komist í undanúrslit á þessu sterka móti.Jonas Källman var markahæstur í liði Svía með sex mörk og Jonas Larholm kom næstur með fimm.Hjá Spánverjum voru Eduardo Gurbindo og Julen Aguinagalde með fjögur mörk hvor.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira