Wilbek: Við gerðum mistök og þeir nýttu sér það Smári Jökull Jónsson í Malmö skrifar 30. janúar 2011 20:37 Wibek á hliðarlínunni í dag, með Claude Onesta þjálfara Frakka í bakgrunni Mynd / AFP
Ulrik Wilbek þjálfari Dana var svekktur en þó stoltur af sínum mönnum eftir tapið gegn Frökkum í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í handknattleik, en leikið var í Malmö í kvöld. Silfrið er því staðreynd hjá Dönum sem geta verið ánægðir með sína frammistöðu á mótinu. „Við börðumst mjög vel og náðum að koma til baka í lokin eftir að Frakkarnir höfðu haft yfirhöndina. Við erum stoltir af okkar frammistöðu en við vorum of þreyttir í lokin til að ógna Frökkunum enn frekar," sagði Wilbek í samtali við Vísi eftir leik. „Það meiddust tveir leikmenn hjá okkur í leiknum og við áttum ekki nógu marga leikmenn í lokin til að gera gæfumuninn. En þetta snýst líka um heppni og hún var ekki með okkur í liði í framlengingunni. Frakkarnir hafa meiri reynslu í svona stöðu, við gerðum nokkur mistök og þeir nýttu sér það," bætti Wilbek við. Fyrir mótið sagði Wilbek að markmið Dana væri að ná einu af sjö efstu sætunum og þar með möguleikanum á að spila um sæti á Ólympíuleikunum í London á næsta ári. Frammistaða liðsins fór því framúr þeirra eigin vonum og Wibek var ánægður þegar hann leit á mótið í heild sinni. „Við spiluðum tíu góða leiki. Það er sjaldgæft að spila vel í tíu leikjum í röð, við höfum skorað mikið af mörkum, spilað skemmtilegan handbolta og ég er mjög stoltur af liðinu," sagði Wilbek við Vísi að lokum.
Mest lesið Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Golf „Heppnir að tapa aðeins 2-0“ Fótbolti Hafþór ætlar að slá tvö heimsmet í sömu vikunni Sport Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Handbolti Ólympíuhöll brennur í Ríó Sport Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Enski boltinn Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Enski boltinn „Á meðan það er tími á klukkunni þá er alltaf möguleiki til að vinna“ Sport Spænsku stórliðin verða ekki með í stemningunni Fótbolti Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Golf Fleiri fréttir Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Stjarnan með sterka yfirlýsingu í fyrsta leik Titilvörnin hefst vel hjá Óðni Janus fagnaði jafntefli og mætir Magdeburg næst Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 35-30 | Valtað yfir stelpurnar okkar í Þórshöfn „Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ „Þetta er margfræg klisja“ „Tel mig vera rosalegan stemningskarl“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-21 | Hafnarfjörður er hvítur í bili Íslendingaliðið áfram eftir frábæran sigur Stórleikur Kristjáns dugði skammt Uppgjörið: Valur - KA 39-21 | Algjör slátrun á Hlíðarenda „Þeir refsa fyrir öll mistök og þeir refsuðu vel í dag“ Viggó fer til Flensburg Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Gísli með sjö stoðsendingar þegar Magdeburg endurheimti sjö stiga forskot Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Díana Dögg innsiglaði deildarmeistaratitil í toppslag Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni Viktor með flottan leik og Börsungar halda áfram að valta yfir deildina Lið Donna byrjar úrslitakeppnina vel Bjarki í úrslitaeinvígið í Ungverjalandi Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm Elín Klara markahæst og undanúrslit blasa við Naumt forskot hjá Janusi og félögum Uppgjörið: Haukar - Afturelding 32-24 | Hafnfirðingarnir sendu Aftureldingu í sumarfrí Óttaðist endalokin fyrir þrettán árum Fram skildi ÍR eftir og mætir Val í undanúrslitum Sjá meira