Umfjöllun: Háspennujafntefli á Akureyri Hjalti Þór Hreinsson í Höllinni á Akureyri skrifar 24. mars 2011 19:43 Akureyringar ræða saman í leikhléi. Fréttablaðið
Akureyri og Haukar skildu jöfn í N1-deild karla í handbolta á Akureyri í kvöld. Leikurinn var æsispennandi allan leikinn og úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum en úrslitin voru 29-29. Fyrri hálfleikur var mjög jafn. Akureyri skoraði fyrst og reyndar gekk sókn liðsins ágætlega. Birkir Ívar varði nokkur skot og virtist ætla að hrökkva í gang, en gerði það ekki. Aron kom inn og varði nokkur skot, þrjú af fjórum fóru aftur til Akureyrar í fyrri hálfleiknum. Sókn Hauka var góð en vörn Akureyringa að sama skapi engin. Megineinkenni liðsins var týnt og markvarslan nánast engin, rétt undir lokin vaknaði Sveinbjörn eftir að hafa kælt sig niður. Haukar áttu þó að koma sér langt yfir með þessa vörn fyrir framan sig en klaufaskapur kom í veg fyrir það. Hvað eftir annað sýndi liðið kæruleysi í sókninni, skaut langt framhjá og yfir, meðal annars hátt yfir úr víti, auk þess sem það kastaði boltanum nokkrum sinnum frá sér. Staðan í hálfleik var 18-18. Það var enginn eftirlitsdómari á leiknum í kvöld en hann ku hafa forfallast. Það var verra því dómararnar í kvöld áttu ekki sinn besta dag. Bæði lið voru mjög ósátt, þeir slepptu nokkrum augljósum atriðum sem átti að dæma á. Gunnar Berg Viktorsson fékk tvær mínútur fyrir kvart af bekknum og Atli Hilmarsson tiltal. Bæði í fyrri hálfleik. Þá þurfti að áminna stuðningsmenn Akureyringa sem sátu með trommur við völlinn að hætta að öskra á dómarana, slíkur var atgangurinn. Sveinbjörn byrjaði að verja betur í seinni hálfleik og Akureyri komst aðeins fram úr. Þó aðeins tveimur mörkum og um miðbik hálfleiksins var staðan 27-26. Leikurinn var hraður og spennandi. Níu mínútum fyrir leikslok leiddi Akureyri með einu marki en liðin skiptust á að skora. Haukar fengu meðal annars tækifæri til að komast yfir en Sveinbjörn varði þá vel. Sjö mínútum fyrir leikslok náði Akureyri svo tveggja marka forystu en Haukar jöfnuðu alltaf. Þegar rúm ein mínúta var eftir var staðan 29-29 og Sveinbjörn varði þá frá Björgvini Hólmgeirssyni, sem hann var með í vasanum nánast allan leikinn. Akureyri fór í sókn þegar mínúta var eftir. Heimir fiskaði strax víti sem Bjarni tók en Birkir Ívar varði. Akureyringar náðu þó frákastinu á ótrúlegan hátt á miðjum vellinum, það gerði Halldór Logi með því að kasta sér á boltann, og 20 sekúndur efitr. Akureyri með boltann og tók leikhlé. Eftir töf með boltann skaut Heimir en Birkir varði. Akureyri átti aukakast þegar leiktíminn var liðinn, Oddur tók skotið en það fór í vegginn. Leiknum lauk því með sanngjörnu jafntefli, 29-29, í æsispennandi og skemmtilegum leik. Sveinbjörn varði sæmilega í seinni hálfleik en vörn Akureyrar var miklu betri í seinni hálfleiknum. Bjarni var góður í sókninni og bar af. Tjörvi var góður hjá Haukum og Birkir varði vel undir lokin.Akureyri - Haukar 29- 29 (18-18)Mörk Akureyrar (skot): Bjarni Fritzson 11/4 (16), Guðmundur Hólmar Helgason 5 (11), Oddur Gretarsson 4 (8), Heimir Örn Árnason 4 (11), Hörður Fannar Sigþórsson 3 (5), Daníel Einarsson 2 (3). Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 16 (41) 39%, Stefán U. Guðnason 0 (4) 0%.Hraðaupphlaup: 6 (Oddur 2, Heimir 2, Guðmundur, Hörður).Fiskuð víti: 5 (Oddur 2, Heimir 2, Daníel).Utan vallar: 0 mínútur.Mörk Hauka (skot): Freyr Brynjarsson 9 (11), Stefán Rafn Sigurmannsson 6/2 (11/3), Tjörvi Þorgeirsson 5 (7), Þórður Rafn Guðmundsson 3 (7/1), Björgvin Hólmgeirsson 3 (12), Sveinn Þorgeirsson 1 (1), Heimir Óli Heimisson 1 (3), Guðmundur Ólafsson 1 (3).Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 12 (32) 41%), Aron Eðvarðsson 5 (14) 36%).Hraðaupphlaup: 7 (Freyr 3, Björgvin 2, Heimir, Þórður).Fiskuð víti: 4 (Heimir, Freyr, Þórður, Sveinn).Utan vallar: 4 mínútur.Dómarar: Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Mjög slakir.
Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Sjá meira