Hrafnhildur: Ætlaði alltaf að spila lengur en Óli Stef Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2011 00:11 Hrafnhildur Skúladóttir fagnar með stelpunum í leikslok. Mynd/Pjetur
Hrafnhildur Skúladóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, var kát eftir sjö marka sigur íslensku stelpnanna á Kína í lokaleik sínum í riðlakeppni HM í Brasilíu í kvöld. Íslenska liðið komst áfram í sextán liða úrslit og vann 3 af 5 leikjum sínum í riðlinum. „Þetta er frábær árangur og framar björtustu vonum. Það er stórkostlegt að ná sextíu prósent sigurhlutfalli í riðlinum. Ég er mjög sátt við þetta," sagði Hrafnhildur í viðtali við Sigurð Elvar Þórólfsson í þættinum hans Þorsteins Joð á Stöð 2 Sport. „Við áttum alveg eins von á þessu. Við vorum búnar að segja það að við ættum möguleika gegn Kína og Angóla og ættum að geta tekið Þýskaland á góðum degi. Ég átti alveg von á því að við gætum komist í sextán liða úrslitin en þetta er samt frábær árangur," sagði Hrafnhildur en var hún farin að gæla við annað sætið. „Ég er tölugúru dauðans þannig að ég spái í alla tölfræði og var því búin að reikna þetta allt út. Það var ekki allt búið að fara eins og við vildum í hinum leikjunum en svona er þetta bara, Rússabjörninn verður bara tekinn," sagði Hrafnhildur ákveðin. Liðið er ungt og flestar stelpurnar í liðinu eiga margar heimsmeistarakeppnir framundan en hvað með Hrafnhildi sjálfa? „Ég er ekki nema 34 ára og á þá kannski tíu ár eftir. Ég var búin að segja það að ég ætlaði alltaf að vera lengur að en Ólafur Stefánsson. Það var alltaf markmiðið en svo hættir hann ekkert þannig að ég veit ekki hvað ég geri," sagði Hrafnhildur í léttum tón. „Það er klárt að ég er ekkert að fara að hætta á næstu mánuðum. Ég hef ennþá gaman að þessu og á meðan að skrokkurinn leyfir þá held ég áfram. Það er mjög skemmtilegt að vera í handbolta þegar vel gengur," sagði Hrafnhildur.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira