Spekingur á TV2: Alfreð hegðar sér eins og Mourinho Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2011 16:30 Alfreð Gíslason, þjálfari þýska stórliðsins Kiel. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Bent Nyegaard, handboltaspekingur dönsku TV2 sjónvarpsstöðvarinnar var ekki sáttur með Alfreð Gíslason, þjálfara þýska stórliðsins Kiel, og ummæli hans um danska dómara eftir að Barcelona sló Kiel-liðið út úr Meistaradeildinni í handbolta. Alfreð gaf það í skyn að dómararnir hefðu verið undir pressu frá EHF um að sjá til það kæmust ekki þrjú þýsk lið í úrslitin þar sem HSV Hamburg og Rhein Neckar Löwen væru þegar komin í úrslitin. „Ég veit það vel að hann segist ekki vera eins og Mourinho en hann verður bara að gera sér grein fyrir því að hann er alveg eins og Mourinho," sagði Bent Nyegaard en Jose Mourinho, þjálfari fótboltaliðs Real Madrid, fór hamförum í ásökunum sínum á hendur dómurum þegar Barcelona vann fyrri leikinn á móti Real Madrid í Meistaradeildinni í fótbolta. „Þessi gagnrýni hans á ekki rétt á sér og er mjög ósanngjörn gagnvart dómurunum, gagnvart Barcelona-leikmönnunum, gagnvart þjálfurum liðsins og gagnvart öllu félaginu. Svona ummæli eiga ekki að heyrast," sagði Bent Nyegaard. „Ég sá leikinn og þeir Mads og Martin dæmdu þennan leik óaðfinnanlega. Þetta var frábær handboltaleikur og dómararnir voru á sama klassa og leikmennirnir. Barcelona spilaði bara frábærlega í þessum leik," sagði Nyegaard. „Það er alveg út í hött að henda fram einhverri samsæriskenningu um EHF og vera um leið að ýja óbeint að því að þeir Mads og Martin hafi þegið mútur frá Barcelona," sagði Nyegaard. Barcelona vann báða leikina á móti Kiel, fyrst 27-25 á Spáni og svo 36-33 í Sparkassen-Arena í Kiel. Barcelona mætir síðan Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein Neckar Löwen í undanúrslitunum.
Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira