Umfjöllun og viðtöl: Rússland - Ísland 30-19 Sigurður Elvar Þórólfsson í Barueri skrifar 11. desember 2011 13:24 Mynd/Pjetur
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta náði að vinna 3 leiki á heimsmeistaramótinu í Brasilíu og var með 50% vinningshlutfall. Heimsmeistaralið Rússa reyndist of stór biti fyrir Ísland í 16-liða úrslitum keppninnar, lokatölur 30-19. Ísland lék vel í rétt um 40 mínutur en í stöðunni 18-16 sýndu Rússarnir styrk sinn og skoruðu þeir tvívegis 5 mörk í röð gegn Íslandi. Staðan í hálfleik var 15-12 og liðið sýndi á köflum að það er líklegt til afreka gegn fremstu liðum heims. Svo einfalt er það. Rússar verða án efa eitt af þeim liðum sem verða í keppni um verðlaunasæti á þessu móti. Íslenska liðið er enn ekki með svörin gegn slíkum mótherja. Hraðinn og styrkurinn sem býr í þessu rússneska liði er eitthvað sem íslenskar handboltakonur eru ekki vanar að kljást við. Ágúst Jóhannsson þjálfari íslenska liðsins var ekki sáttur með lokakaflann hjá liðinu. Hann hafði óskað eftir að liðið myndi ná að hanga lengur í Rússunum. En því miður var ekki orkan til staðar hjá liðinu. „Líkamlega fannst mér við vera í góðu standi og tilbúnar í átökin. Það sem hefur verið erfiðast er þessi andlegi þáttur. Við vorum alveg svakalega hátt upp eftir sigrana gegn Svartfjallalandi og Þjóðverjum. Það fannst mér erfiðast að ná mér niður eftir þá leiki og núna veit ég að það má ekki gerast,“ sagði Karen Knútsdóttir leikstjórnandi íslenska liðsins. Íslenska kvennalandsliðið getur verið stolt af árangrinum á þessu móti. Að komast í 16-liða úrslit er frábær árangur og framtíðin er björt.
Mest lesið Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Sport Hafþór reyndi við þyngd sem hefði fært honum tugi milljóna Sport Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham? Fótbolti HM í hættu? Messi meiddist í síðasta leik sínum fyrir HM Fótbolti Tímamót á HM: Enginn leikmaður frá Real Madrid í liði Spánar Fótbolti Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Formúla 1 Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Enski boltinn Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Gengi Framara komið skemmtilega á óvart Fótbolti Fleiri fréttir Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Sjá meira