Rhein-Neckar Löwen datt út úr þýska bikarnum í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. desember 2011 22:00 Guðmundur Guðmundsson. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í Rhein-Neckar Löwen duttu út fyrir þýsku meisturunum í HSV Hamburg í sextán liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í kvöld. HSV Hamburg vann leikinn 33-32 í framlengingu en Michael Kraus skoraði sigurmark Hamburg af vítalínunni. Rhein-Neckar Löwen var með frumkvæðið stærsta hluta leiksins, var 14-12 yfir í hálfeik og með tveggja marka forskot, 28-26, þegar aðeins hálf mínúta var eftir af leiknum. Blazenko Lackovic minnkaði muninn og Hans Lindberg tryggði Hamburg síðan framlengingu úr hraðaupphlaupi eftir að Börge Lund hafði tapað boltanum. Það var jafnt á öllum tölum í framlengingunni en Michael Kraus skoraði sigurmarkið úr víti 50 sekúndum fyrir leikslok. Dan Beutler tryggði síðan sínum mönnum sigurinn með því að verja lokaskot leiksins frá Karol Bielecki. Uwe Gensheimer skoraði níu mörk fyrir Löwen og Karol Bielecki var með sjö mörk. Róbert Gunnarsson komst ekki á blað í leiknum. Michael Kraus skoraði 9 mörk fyrir Hamburg þarf af 8 þeirra úr vítum. Kiel, Flensburg-Handewitt, Hannover-Burgdorf og TV 1893 Neuhausen komust einnig áfram í bikarnum í kvöld. Hannes Jón Jónsson var með 4 mörk í 34-25 sigri Hannover-Burgdorf á Friesenheim en Vignir Svavarsson skoraði tvö mörk og Ásgeir Örn Hallgrímsson var með eitt mark.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Sjá meira