Svartfjallaland vann Þjóðverja | allt í járnum í A-riðli Sigurður Elvar Þórólfsson í Santos skrifar 4. desember 2011 18:08 Mynd/Pjetur
Það var greinilegt að hið gríðarlega sterka lið Svartfjallalands hafði vaknað upp að værum blundi eftir 22-21 tap liðsins gegn „litla“ Ísland í opnunarleik A-riðilsins á heimsmeistaramótinu í handknattleik. Svartfjallalandi er spáð mikilli velgengni á þessu móti og í dag sýndi liðið góða takta í 25-24 sigri liðsins gegn Þjóðverjum í Arena Santos hér í Brasilíu. Svartfjallaland var með yfirhöndina í fyrri hálfleik og náði mest 5 marka forskoti, 9-4. Staðan í hálfleik var 12-10 fyrir Svartfjallaland. Leikmenn Svartfjallands fögnuðu hverju einasta marki eins og það hefði tryggt liðinu heimsmeistaratitilinn. Taktar og tilþrif sem voru ekki til staðar gegn Íslandi í gær. Þjóðverjar náðu að rétta sinn hlut í upphafi síðari hálfleiks en frábær kafli Svartfjallalands kom liðinu í 18-13 þegar 18 mínútur voru eftir af leiknum. Þjóðverjar náðu að minnka muninn á síðustu mínútum leiksins og aðenis munaði 2 mörkum þegar 4 mínútur voru eftir 23-21: Þjóðverjar náðu að minnka muninn í 1 mark egar 15 sek voru eftir. Og liðið komst í aðra sókn þegar 10 sek voru eftir en misheppnuð sending varð til þess að ekkert skot kom á markið. Þýska liðið er sterkt en náði sér ekki á strik í dag. Helsta vopn þeirra er stórskyttan hávaxna Franziska Mietzner. Hún er rétt rúmlega 1.90 m á hæð og getur svo sannarlega skotið ef hún fær að komast á „flugbrautina“ sína. Það var sérstaklega áhugvert að sjá að Ana Djokic, smávaxinn línumaður Svartfellinga, stóð vörnina gegn Mietzner. Djokic er 1.68 m á hæð en býr yfir gríðarlegum líkamsstyrk. Stuðningsmenn Noregs, sem eru fjölmargir, fögnuðu sigri Svartfellinga ákaft. Þar sem að Noregur tapaði gegn Þýskalandi í gær.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira