HM 2011: Fimm lið komin áfram - ótrúlegur sigur Brasilíu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. desember 2011 10:15 Silvia Pinheiro, til hægri, og Samira Rocha, fagna sigrinum glæsilega á Frökkum í gær. Nordic Photos / AFP
Heimsmeistarar Rússa, gestgjafar Brasilíu, Rúmenía, Danmörk og Svíþjóð tryggðu sér í gær öll sæti í 16-liða úrslitum á heimsmeistarmótinu í handbolta. Rússar unnu 37 marka sigur á andstæðingum sínum í gær. Spilað var í öllum riðlunum fjórum í gær en í dag verður frí í C- og D-riðlum. Ísland verður í eldlínunni gegn Þýskalandi klukkan 21.30 í kvöld og verður Ísland að fá stig úr leiknum til að eiga möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslitin. Brasilía sýndi að liðið ætlar sér stóra hluti á heimavelli með því að vinna góðan sigur á sterku liði Frakklands í gær, 26-22, í C-riðli. Viðsnúningur Brassanna var ótrúlegur því þeir voru sjö mörkum undir í hálfleik, 17-10. Seinni hálfleikur var með ólíkindum hjá Brasilíu sem skoraði sextán mörk gegn aðeins fimm frá Frökkum - sem skoruðu þó fyrsta mark seinni hálfleiksins og komust þá átta mörkum yfir. Brasilía setti í fluggírinn, jafnaði þegar ellefu mínútur voru eftir og skoruðu sjö af átta síðustu mörkum leiksins. Markvörðurinn Chana Masson átti ótrúlega innkomu í leikinn og varði alls tíu af þeim fimmtán skotum sem hún fékk á sig. Hinn markvörður Brasilíu, Barbara Arenhart, varði aðeins þrjú af 20 skotum. Í sama riðli náði Rúmenía að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum þrátt fyrir að hafa misst niður sex marka forystu gegn Japan í jafntefli, 28-28. Japan var fyrirfram talið eitt lakasta lið mótsins en náði frábæru stigi gegn bronsliði EM í Danmörku í fyrra. Danir, Svíar (í D-riðli) og Rússar (í B-riðli) eru öll með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjá leikina. Danir unnu mikilvægan sigur á Króötum í gær og þá var líklegasta ójafnasta viðureign mótsins þegar að heimsmeistarar Rússa slátruðu Áströlum, 45-8. Sem fyrr er spennan mest í A-riðli - íslenska riðlinum. Þar eru fjögur lið efst og jöfn með fjögur stig, Ísland er með tvö og Kína ekkert. Kínverjar sýndu hins vegar styrk sinn í gær með því að tapa fyrir Þýskalandi í gær með minnsta mun, 23-22, en Þjóðverjar unnu Norðmenn nú um helgina.Hér má sjá öll úrslit leikjanna og stöðuna í riðlunum fjórum.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira