HM 2011: Norsku stelpurnar tryggðu sér efsta sætið Sigurður Elvar Þórólfsson í Santos skrifar 9. desember 2011 20:57 Mynd/Pjetur
Noregur tryggði sér efsta sætið í A-riðli í kvöld með 28-27 sigri gegn Svartfjallandi á heimsmeistaramótinu í handbolta kvenna hér í Santos. Lokamínútur leiksins voru æsispennandi en Norðmenn misstu niður ágætt forskot sitt sem liðið hafði megnið af leiknum. Noregur mætir Hollendingum eða Suður-Kóreu í 16-liða úrslitum. Staðan í hálfleik var 15-11 fyrir Noreg en liðið komst í 9-2 eftir 12 mínútur. Í stöðunni 13-6 náði Svartfjallaland að skora 5 mörk í röð og staðan var skyndilega 13-10. Norðmenn skoruðu fyrstu þrjú mörkin í síðari hálfleik og komust í 18-11 en Svartfellingar gáfust ekki upp. Þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum skoraði Svartfjallaland 3 mörk í röð, staðan var þá 24-22. Liðin skiptust á að skora eftir það en markvörður Noregs, Katrine Lunde Haraldsen, varði oft ótrúlega vel á lokamínútunum og bjargaði því að Noregur lenti ekki undir. Hún varð alls 16 skot. Linn Jorum Sulland var markahæst í liði Noregs með 9 mörk en Katarina Bulatovic og Popovic skoruðu 7 mörk hvor um sig fyrir Svartfjallaland. Þórir Hergeirsson fagnaði sigrinum innilega líkt og aðrir í norska liðinu. Íslenski þjálfarinn var mjög sáttu við að ná efsta sætinu. Norðmenn unnu fjóra síðustu leikina í riðlinum eftir óvænt tap gegn Þjóðverjum í fyrstu umferð. Svartfellingar voru allt annað en ánægðir með frönsku Bonaventura systurnar sem dæmdu leikinn. Á lokakaflanum var Bojana Popovic rekinn af velli fyrir ranga skiptingu og í kjölfarið varð allt vitlaust á varamannabekk Svartfjallalands.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Sjá meira