HM 2011: Hanna telur að Ísland geti unnið Þjóðverja 24. nóvember 2011 14:15
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta undirbýr sig af krafti fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í næstu viku í Brasilíu. Ísland leikur tvo æfingaleiki um helgina gegn Tékkum í Vodafonehöllinni. Landsliðskonan Hanna G. Stefánsdóttir leikmaður Stjörnunnar segir að markmiðið sé að enda í einu af fjórum efstu sætunum í A. riðli og komast þar með í 16-liða úrslit. Hanna telur að Ísland geti náð góðum úrslitum gegn Þjóðverjum. „Með toppleik getum við unnið Þjóðverja," segir Hanna í viðtali sem Hans Steinar Bjarnason íþróttafréttamaður Stöðvar 2 tók í gær. Fyrri æfingaleikurinn gegn Tékkum er á föstudagskvöld og hefst hann 19.30. Á laugardag mætast liðin á ný og hefst sá leikur 14.30. „Stemningin er góð í hópnum. Það er vel tekið á því á æfingum. Stefnan er tekin á það að fara upp úr riðlinum," segir Hanna en Ísland er í riðli með Noregi, Svartfjallandi Angóla, Þýskalandi og Kína í riðli.Dagskrá yfir beinar útsendingar frá HM í Brasilíu á Stöð 2 sport: Noregur, sem Íslendingurinn Þórir Hergeirsson þjálfar, vann til bronsverðlauna á síðasta heimsmeistaramóti sem fram fór í Kína árið 2009. Noregur er líklegt til afreka á mótinu en mögleikar Íslands liggja fyrst og fremst í því að ná góðum úrslitum gegn Angóla og Kína. „Við vitum ekki mikið en Angóla og Kína eru með sterk lið. Það verður enginn leikur auðveldur í þessum riðli. Við gerum okkar besta og þá erum við til alls líklegar. Við þurfum að ná upp sterkum varnarleik gegn sterkari þjóðunum. Norðmenn eru með mjög sterkt lið og það skiptir engu máli þótt einhver detti út úr því liði. Það kemur alltaf maður í manns stað. Með toppleik þá eigum við mögleika gegn Noregi og við gætum líka unnið Þjóðverja," segir Hanna G. Stefánsdóttir.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti