Kiel vann nauman sigur á Füchse Berlin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. október 2011 18:07 Alfreð Gíslason er að gera frábæra hluti með Kiel. Nordic Photos / Bongarts
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel eru enn með fullt hús stiga í þýsku úrvalsdeildinni eftir eins marks sigur á Füchse Berlin í dag, 33-32. Kiel var skrefi framar lengst af í leiknum en staðan í hálfleik var jöfn, 17-17, eftir að heimamenn náðu að skora fjögur af síðustu fimm mörkum fyrri hálfleiksins. Aftur náðu gestirnir frá Kiel undirtökunum í seinni hálfleik en aftur dró saman með liðunum í seinni hálfleik. Munurinn var fimm mörk, 33-28, þegar sex mínútur voru til leiksloka en Füchse Berlin náði að skora fjögur mörk í röð og minnka muninn í eitt mark. Silvio Heinevetter, markvörður Füchse Berlin, varði svo frá Filip Jicha þegar sex sekúndur voru til leiksloka og þrumaði boltanum fram. Boltinn hafnaði þó utan vallar og leiktíminn rann út. Heinevetter var gjörsamlega sturlaður í leikslok þar sem hann vildi meina að Füchse Berlin hefði átt að fá aukakast á lokasekúndum leiksins. En dómararnir stóðu á sínu og Heinevetter gekk öskureiður af velli. Alexander Petersson skoraði tvö mörk í leiknum fyrir Füchse Berlin en Aron Pálmarsson skoraði ekki í dag fyrir Kiel. Daniel Narcisse var gríðarlega öflugur hjá gestunum og skoraði níu mörk en hjá heimamönnum var Iker Romero markahæstur með átta mörk. Kiel er því á toppnum með 20 stig en Füchse Berlin er nú í fimmta sætinu með þrettán stig. Dagur og félagar eiga þó leik til góða. Þá vann Lemgo sigur á Grosswallstadt, 19-18. Sverre Jakobsson spilaði í vörn Grosswallstadt í leiknum. Hannover-Burgdorf vann góðan sigur á Melsungen á útivelli, 36-31. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði sex mörk í leiknum, Vignir Svavarsson þrjú en Hannes Jón Jónsson ekkert. Hannover-Burgdorf komst upp í sex stig með sigrinum og er í fjórtánda sæti deildarinnar. Grosswallstadt er líka með sex stig en í þrettánda sæti. Í þýsku B-deildinni vann Essen sigur á Bittenfeld, 30-27. Arnór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bittenfeld og Árni Sigtryggsson eitt.
Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira