Sebastian Vettel á Red Bull verður fremstur á ráslínu í japanska Formúlu 1 kappakstrinum á Suzuka brautinni, sem fram fer á sunnudag. Vettel varð aðeins 0.009 sekúndum á undan Jenson Button á McLaren í tímatökunni í dag.
Það gekk þó ekki allt eins og í sögu hjá Vettel og Red Bull fyrir tímatökuna.
„Ég fór útaf á æfingu í gær og skemmdi framvænginn, þannig að það var ekki auðvelt að standsetja bílinn fyrir daginn í dag. Af þeim sökum var jafnvægi bílsins ekki gott í morgun (á æfingu) og við fórum ekki nógu hratt. Eftir æfinguna í morgun, settumst við niður og spáðum í hvar við gætum bætt okkur og náðum öllu út úr bílnum í tímatökunni. Það var lykilatriði," sagði Vettel í fréttatilkynningu frá Red Bull.
Vettel getur orðið heimsmeistari ökumanna á morgun og nægir eitt stig í þeim fimm mótum sem eftir eru, jafnvel þó Button, eini keppinautur hans um titilinn vinni mótið á Suzuka brautinni og fjögur mót til viðbótar að auki.
„Það var ekki mikill munur á mér og Jenson. Ég vil þakka liðinu og þeim í bækistöð liðsins fyrir að færa mér annan framvæng. Ég sæti ekki hér, án þeirra og ég er mjög glaður og ánægður. Hvort ég næ í eitt stig eða ekkert á morgun - ég er ekki einbeita mér að því."
„Ég lærði lexíu í gær, þegar ég var ekki alveg 100% einbeittur og missti bílinn útaf. Keppnin á morgun er löng og erfið. Ég hlakka til. Við elskum að koma hingað, það er sérstök stemmning og áhorfendur eru ástríðufullir og brjálaðir," sagði Vettel góðlátlega.
„Þegar við erum á hótelinu á morgnanna, þá er það fullt af fólki og allir eru gargandi. Það er skemmtileg tilfinning að vera hluti af því og það verður sérstakt af ræsa af stað, fremstur á ráslínu. Keppnin er löng og það getur margt gerst", sagði Vettel.
Bein útsending frá japanska Formúlu 1 kappakstrinum hefst með upphitun klukkan 05.30 í fyrramálið á Stöð 2 Sport og verður útsendingin í opinni dagskrá.
Vettel ekki að einbeita sér að stiginu sem vantar
