Þrettán bera sama nafn og slátrarinn í Útey Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. júlí 2011 09:15 Anders Behring Breivik, sem grunaður er um hryðjuverkin, er 32 ára gamall.
Þrettán norskir karlmenn bera svipað nafn og Anders Behring Breivik, sem hefur játað að hafa orðið 76 að bana í hryðjuverkaárásum í Osló og í Útey á föstudaginn. Símtölum frá blaðamönnum rignir nú yfir mennina þrettán og eru þeir dregnir niður í svaðið á allskyns spjallsíðum á Netinu. „Það er erfitt og vont að maður skuli vera bendlaður við svo skelfilegt mál," segir hinn 36 ára gamli Anders Breivik við vefútgáfu VG. Hann er einn af fjórum sem er frá sama bæ, hefur svipað nafn og er á svipuðum aldri og hryðjuverkamaðurinn í Osló og á Útey. Hann hefur þess vegna komist í kastljós fjölmiðlanna að undanförnu. „Það hafa nokkrir hringt í mig, gamlir skólafélagar og vinir, blaðamenn sem eru að rannsaka nafnið," segir hinn 36 ára gamli. Það er síðan til að flækja málin enn meira að það er sá 36 ára gamli, en ekki hryðjuverkamaðurinn, sem er formaður áhugafélags um byssueign. Þessi staðreynd hefur orðið til þess að flækja stöðu þeirra ennþá meira. „Þetta er eins og að vakna og heita allt í einu Adolf Hitler, segir Breivik. Hann bætir þó við að hugur hans sé fyrst og fremst hjá þolendum ódæðanna. Hans eigin vandamál sé lítið í því samhengi.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira