FH-liðið orðið of gamalt? 12. júlí 2011 14:00
Hörður Magnússon velti því upp í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 í gærkvöld hvort FH-liðið væri orðið of gamalt. FH-ingar töpuðu 3-1 gegn ÍBV í Eyjum og þótti frammistaða þeirra ekki góð. Magnús Gylfason og Reynir Leósson, sérfræðingar þáttarins, höfðu sína skoðun á vandamálum FH-liðsins. „Þetta voru gríðarlega vonbrigði fyrir FH að tapa þessum leik. FH-ingar litu á þennan leik sem úrslitaleik til að bjarga sumrinu hjá sér. Þeir eru dottnir út úr bikarnum og hefðu getað kastað sér í efri hlutann og hangið í efstu liðunum. En eins og þeir sögðu sjálfir í viðtölum þá geta þeir kvatt toppbaráttuna í bili," sagði Magnús. Hörður velti því upp hvort FH-liðið væri orðið of gamalt. „Ef þú talar um lykilmenn. Bjarki, Tommy, Ásgeir, Freyr, Atli Viðar þá eru allt strákar sem eru komnir á efri árin," sagði Magnús. Þá ræddu þeir um leikmannakaup FH-inga síðastliðin ár. „Það hefur verið mikið talað um leikmenn á borð við Herra Fjölni og nokkra útlendinga sem áttu að fylla í skörð. Nú síðast úr Keflavík og Hólmar Örn. Útlendingarnir síðust ár og jafnvel Íslendingarnir, þetta hefur alls ekki gengið upp," sagði Magnús. Reynir Leósson hafði sína skoðun á vandamálum Hafnfirðinga. „Við höfum ekki séð FH-inga ná að setja upp þetta háa tempó í þessum lykilleikjum. Á móti ÍBV ná þeir ekki að setja upp þessa pressu sem þeir hafa verið þekktir fyrir undanfarin ár. Þessir strákar hljóta að vera í góðu formi en hausinn er ekki í lagi og þá verða lappirnar þungar," sagði Reynir „Þegar þeir hafa mætt liðum sem hafa pressað þá, eins og gegn ÍBV og KR, þá lenda þeir í vandræðum. Þegar þeir fá að spila snin bolta, líkt og gegn Grindavík, þá fá þeir að spila sinn bolta. Þeir setja pressu hátt á vellinum og þá blómstra þeir. Þeir virðast hins vegar ekki ná að mæta bestu liðunum á þann hátt. Þeir hafa einfaldlega ekki kraftinn í það," bætti Reynir við.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira