Bild: Brand hættir í júní Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. maí 2011 23:09 Heiner Brand. Nordic Photos / Bongarts
Þýska dagblaðið Bild fullyrðir í dag að Heiner Brand, landsliðsþjálfari Þýskalands í handbolta, muni hætta í júní eftir fjórtán ár í starfi. Brand hefur náð frábærum árangri á ferlinum en hann gerði Þýskaland að Evrópumeistara árið 2004 og svo heimsmeisturum þremur árum síðar, er keppnin fór fram í Þýskalandi. En Þjóðverjum hefur gengið illa á síðustu stórmótum og endað í tíunda og ellefta sæti. Liðið hefur fengið mikla gagnrýni fyrir spilamennsku sína og kemur það því ekki á óvart að Brand skuli hætta nú, þó svo að samningur hans rennur ekki út fyrr en 2013. Brand mun klára síðustu tvo leiki Þýskalands í undankeppni EM 2012, gegn Lettlandi og Austurríki. Ísland er einnig í sama riðli og í harðri baráttu við Austurríki og Þýskaland um sæti í lokakeppninni sem fer fram í Serbíu í janúar næstkomandi. Eins og áður hefur komið fram er Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin, einn þeirra sem kemur til greina sem eftirmaður Brand. Núverandi aðstoðarmaður hans, Martin Heuberger, er einnig ofarlega á lista. Bild fullyrðir að Brand muni tilkynna afsögn sína á blaðamannafundi á miðvikudaginn næstkomandi.
Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira