Dagur hefur enn ekkert heyrt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. maí 2011 13:30 Dagur Sigurðsson. Nordic Photos / Bongarts
Dagur Sigurðsson hefur ekkert meira heyrt í forráðamönnum þýska handknattleikssambandsins vegna landsliðsþjálfarastöðunnar sem nú er laus í Þýskalandi. Heiner Brand, núverandi landsliðsþjálfari, tilkynnti í gær að hann muni stíga til hliðar í sumar eftir fjórtán ár í starfi. Hann mun stýra liðinu í síðustu tveimur leikjunum í undankeppni EM 2012 sem fara fram nú í júní. Dagur er í þýskum fjölmiðlum annar tveggja sem koma hvað helst til greina í starfið. Hinn er Martin Heuberger, núverandi aðstoðarmaður Brand. „Ég hef ekkert meira heyrt í þeim. Ég geri því ráð fyrir því að þeir séu að semja við einhvern annan,“ sagði Dagur í samtali við Vísi í dag. Hann var einn fjögurra sem þýska sambandið ræddi við í apríl um mögulega ráðningu. „Ég er annars ekkert mikið að velta þessu fyrir mér. Ég er í flottu starfi eins og er,“ sagði Dagur en hann er nú þjálfari þýska úrvalsdeildarfélagsins Füchse Berlin. Berlínarliðið keppir á næsta ári í Meistaradeild Evrópu og því spennandi tímar fram undan þar.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira