Undanúrslit þýska bikarsins í beinni á Stöð 2 Sport í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2011 10:00 Ólafur Stefánsson. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Það verður mikið um dýrðir í Color Line Arena í Hamburg í dag þegar undanúrslitaleikir þýsku bikarkeppninnar í handbolta fara fram. Tvö Íslendingalið eiga þá möguleika á því að komast í bikarúrslitaleikinn á morgun og það er hægt að sjá báða leikina beint á Stöð 2 Sport. Úrslitaleikurinn verður síðan einnig í beinni á morgun. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel mæta Frisch Auf Göppingen í fyrri leiknum klukkan 11.15 og verður sá leikur í beinni á Stöð 2 Sport 3. Alfreð á möguleika á því að gera Kiel-liðið að bikarmeisturum í annað sinn á þremur árum. Aron Pálmarsson leikur með Kiel og þetta er eini stóri titilinn sem hann hefur ekki unnið með félaginu. Það hefur ekkert félag unnið þýska bikarinn jafnoft og Kiel sem hefur orðið bikarmeistari 1998, 1999, 2000, 2007, 2008 og svo 2009. Þetta er líka eini möguleikinn á titli fyrir Alfreð og strákana hans á þessu tímabili. Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í Rhein-Neckar Löwen mæta Flensburg-Handewitt í seinni undanúrslitaleiknum sem hefst klukkan 13.15 og verður í beinni á Stöð 2 Sport. Löwen-liðið hefur verið á miklu skriði að undanförnu og er að reyna að vinna sinn fyrsta stóra titil í sögu félagsins. Löwen tapaði bikarúrslitaleiknum í fyrra og þá léku þeir Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson með liðinu eins og nú. Róbert Gunnarsson kom hinsvegar til liðsins fyrir þetta tímabil en hann tapaði bikarúrslitaleiknum með Gummersbach á móti Kiel fyrir tveimur árum. Þeir hafa því allir harma að hefna um helgina. Undanúrslit þýska bikarsins í handbolta (Final-Four)11.15 Frisch Auf Göppingen - THW Kiel (Beint á Stöð 2 Sport 3) 13.15 Flensburg-Handewitt - Rhein-Neckar Löwen (Beint á Stöð 2 Sport)Úrslitaleikurinn fer síðan fram á morgun og verður einnig í beinni á Stöð 2 Sport.
Mest lesið Tindastóll - Stjarnan | Sópur í Síkinu? Körfubolti Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Golf Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Fleiri fréttir Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Sjá meira