Óvissumerki innan Vinstri grænna gætu haft áhrif á samstarfið Boði Logason skrifar 21. mars 2011 22:15 Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðiprófessor „
Ég held að ríkisstjórnin sjái þetta þannig að það sé enginn annar betri valkostur og þess vegna sé hún ákveðin í að lifa þetta af," segir Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálafræðiprófessor. Hann segir að tímasetning Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar um að segja sig úr þingflokknum í dag hafi komið á óvart. Gunnar Helgi segir að á milli forystufólks í ríkisstjórninni og þorra þingmanna ríki traust og þess vegna sé hún ákveðin í að þrauka. Hann nefnir að Alþingi gæti lagt fram vantraust á ríkisstjórnina en það sé ekki að fara gerast eins og staðan er í dag.Óvissumerki innan Vinstri grænna Hann segir að ríkisstjórnin hafi ennþá meirihluta á þingi, 33 þingmenn á móti 30, en það séu hinsvegar óvissumerki innan Vinstri grænna sem gætu haft áhrif á stjórnarsamstarfið, sem hafa verið í hinni svokölluðu Órólegu deild. „Óvissumerkin eru Jón Bjarnason, Ögmundur Jónasson, Ásmundur Einar Daðason og Guðfríður Lilja, þegar hún kemur aftur úr barneignarleyfi," segir Gunnar Helgi. „Annars vegar hafa þau efasemdir um ýmsa þætti í stjórnarstefnunni og hins vegar um starfshætti ríkisstjórnarinnar - að vera í ríkisstjórn fylgi einhver kvöð," segir hann.Ólíklegt að þriðji flokkurinn komi í ríkisstjórn Hann segir að hlutverk þessarar ríkisstjórnar hafi verið að slökkva eldana eftir búsáhaldabyltinguna og það sé enginn flokkur núna á þingi sem getur tekið við því slökkvistarfi. Þá sé ólíklegt að þriðji flokkurinn hafi áhuga á að koma inn í ríkisstjórnarsamstarfið. „Af því að þessir tveir flokkar hafa meirhluta á þingi, því yrði þriðji flokkurinn alltaf óþarfur í ýmsum málum og það er hætta á að það myndi veikja samningsstöðu hans í ríkisstjórn.“ Ef kosið yrði núna, segir Gunnar Helgi, að Samfylkingin og Vinstri grænir kæmu illa út úr þeim kosningum. „Besti flokkurinn hefur til dæmis gefið það út að hann ætli að bjóða fram á landsvísu í næstu þingkosningum, segir hann og bendir einnig á að kjósendur séu ósáttir við stjórnmálastéttina í landinu.Ekki sjálfgefið að Jón Bjarnason verði til friðs Um stöðu Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, innan ríkisstjórnarinnar segir Gunnar Helgi að það sé ekki sjálfgefið að hann verði til friðs. „Meðan hann er ráðherra þá er hann sennilega tilbúinn í allskonar málamyndanir, því hann hefur áhrif sem ráðherra. En ef það á að fara leggja niður hans ráðherraembætti þá er ekki sjálfgefið að hann verð til friðs. Þetta setur ríkisstjórninni mörk." Hann bendir á að Lilja og Atli - ásamt Ásmundi Einari Daðasyni, hafa fylgst að við afgreiðslu fjárlagana og einnig á fundi í flokknum í byrjun janúar. „En hinsvegar átti enginn von á þessu núna í dag, þetta kemur á óvart í þeim skilningi. Ég þori ekki að túlka það, en þetta er eflaust í framhaldi af ákveðinni atburðarrás sem við erum í sjálfu sér búin að horfa á í langan tíma," segir Gunnar Helgi að lokum.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira