Handbolti

Vignir skoraði sex mörk gegn sínu gamla félagi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vignir í leik með Lemgo á síðasta ári en hann leikur nú með Hannover-Burgdorf.
Vignir í leik með Lemgo á síðasta ári en hann leikur nú með Hannover-Burgdorf. Nordic Photos / Bongarts
Vignir Svavarsson skoraði sex mörk fyrir Hannover-Burgdorf er liðið tapaði fyrir Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 31-27.

Vignir lék einmitt með Lemgo í tvö ár áður en hann gekk í raðir Hannover-Burgdorf í sumar.

Hannes Jón Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir Burgdorf og Sigurbergur Sveinsson eitt. Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað að þessu sinni.

Þá vann Göppingen stórsigur á Wetzlar, 35-23. Kári Kristján Kristjánsson skoraði fimm mörk fyrir síðarnefnda liðið.

Wetzler er í ellefta sæti deildarinnar með 20 stig en Hannover-Burgdorf er í næstneðsta sætinu með ellefu stig.

Þá var einnig leikið í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Ingimundur Ingimundarson skoraði tvö mörk fyrir Álaborg sem vann fimm marka sigur á Fredericia, 31-26.

Álaborg er í öðru sæti deildarinnar með 34 stig, tólf stigum á eftir toppliði AG.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×