Björgvin Páll með stórleik í glæsilegum sigri á Montpellier - myndband Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. mars 2011 22:43 Björgvin Páll átti frábæran leik í marki Kadetten í kvöld. Mynd/AP
Svissneskir fjölmiðlar halda vart vatni yfir frammistöðu landsliðsmarkvarðarins Björgvins Páls Gústavssonar er lið hans, Kadetten Schaffhausen, vann glæsilegan fimm marka sigur á franska liðinu Montpellier í kvöld, 31-26. Þetta var fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en sá síðari fer fram um aðra helgi í Frakklandi. Björgvin Páll var besti maður Kadetten í leiknum en hann lék allan leikinn og sýndi oft snilldartilþrif, að sögn svissneskra fjölmiðla sem hafa fjallað um leikinn. Hann varð alls 24 skot í leiknum, þar af þrjú víti. Fjórir úr heims-, Evrópu og Ólympíumeistaraliði Frakklands leika með Montpellier, þeirra á meðal Nicola Karabatic sem skoraði fimm mörk í kvöld. Guillaume Joli skoraði þrjú mörk, Michael Guigou tvö en Samuel Honrubia komst ekki á blað. Fimmti landsliðsmaðurinn, William Accambray, gat ekki leikið með liðinu í kvöld vegna meiðsla. Staðan í hálfleik var 17-11, Kadetten í vil, en þeir svissnesku gáfu ekkert eftir í síðari hálfleik og komust mest tíu mörkum yfir. Montpellier náði þó að berja frá sér á lokakaflanum og minnka muninn í fimm mörk. Það gæti reynst mikilvægt fyrir síðari leikinn en það er ljóst að Björgvin Páll og félagar eru engu að síður í vænlegri stöðu. Björgvin Páll er nýbúinn að jafna sig eftir að hann slasaðist á auga á æfingu íslenska landsliðsins fyrr í þessum mánuði. Samantekt úr leiknum má sjá hér.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira