Átta mörk frá Ólafi voru ekki nóg fyrir Rhein-Neckar Löwen Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2011 20:04 Ólafur Stefánsson. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Rhein-Neckar Löwen tapaði óvænt 27-32 á útvelli á móti franska liðinu Chambéry Savoie í síðasta leik sínum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í dag. THW Kiel hefur því þegar tryggt sér sigur í riðlinum þótt að lærisveinar Alfreðs Gíslasonar spili ekki síðasta leik sinn fyrr en á morgun. Chambéry Savoie var 17-16 yfir í hálfleik en komst mest níu mörkum yfir í seinni hálfleiknum áður en strákarnir hans Guðmundar Guðmundssonar náðu að laga stöðuna í lokin. Þetta var aðeins annað tap Rhein-Neckar Löwen í tíu leikjum í Meistaradeildinni. Ólafur Stefánsson átti mjög góðan leik ásamt norska línumanninum Bjarta Myrhol en það dugði ekki til. Ólafur skoraði átta mörk í leiknum þar af kom aðeins eitt markanna á vítalínunni. Róbert Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson skoruðu báðir eitt mark fyrir Rhein-Neckar Löwen í leiknum. Barcelona vann 30-27 útisigur á slóvenska liðinu Celje Lasko og jafnaði Rhein-Neckar Löwen að stigum en Rhein-Neckar Löwen er ofar vegna betri árangurs í innbyrðisleikjum.
Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn Víkingur - Keflavík | Hindrun fyrir meistarana? Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira