Norðmenn gerðu Íslendingum greiða og burstuðu Þjóðverja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2011 16:49 Mynd/Valli
Noregur vann tíu marka stórsigur á Þýskalandi, 35-25, í fyrsta leik dagsins í íslenska milliriðlinum. Þessi úrslit þýða að Ísland getur ekki endaði neðar en í fjórða sæti í riðlunum og mun því spila um annaðhvort fimmta eða sjöunda sæti á mótinu. Þjóðverjar spila því um ellefta sætið á mótinu en þeir áttu enn möguleika á Ólympíusæti með sigri. Liðin í 2. til 7. sæti komast inn í forkeppni Ólympíuleikanna og því léttu þessi úrslit talsvert af pressunni af íslenska liðinu fyrir leik kvöldsins á móti Frökkum. Ungverjar geta enn komist upp fyrir okkur nái þeir í stig á móti Spánverjum á eftir en fái Ísland jafnmörg stig og Ungverjar í dag þá mun íslenska liðið spila um fimmta sætið. Norðmenn fóru á kostum í leiknum í dag og fóru afar illa með þýska liðið einkum í síðari hálfleiknum þegar það var algjör uppgjöf í þýska liðinu. Steinar Ege átti frábæran leik í norska markinu og flestir leikmenn liðsins voru í miklum ham.Þjóðverjar áttu frábæran leik á móti Íslandi á laugardaginn en hafa síðan tapað fyrir bæði Ungverjum og Norðmönnum. Tapið í dag þýðir að Þjóðverjar spila um 11. sætið á mótinu en Norðmenn munu spila um 9. sætið. Norðmenn voru með frumkvæðið strax frá byrjun leiksins og náðu síðan fjögurra marka forskoti fyrir hálfleik, 17-13, með góðum lokakafla í hálfleiknum.Þjóðverjar náðu að minnka muninn í þrjú mörk í upphafi seinni hálfleiks en þeir komust ekki nær. Norðmenn stungu síðan af og léku sér af þeim þýsku á lokakafla leiksins.Håvard Tvedten skoraði 8 mörk fyrir Norðmenn og þeir Bjarte Myrhol og Christoffer Rambo voru báðir með 7 mörk. Steinar Ege var þó maður leiksins því hann varði 21 skot þar af 14 þeirra í fyrri hálfleiknum. Michael Kraus skoraði 6 mörk fyrir Þjóðverja.
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira