Ísland spilar um 5. sætið á HM - Spánverjar unnu Ungverja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2011 19:01 Mynd/Valli
Það voru sannkölluð draumaúrslit fyrir okkur Íslendinga í okkar milliriðli í dag því Spánverjar voru að vinna sex marka sigur á Ungverjum, 30-24 en áður höfðu Norðmenn unnið Þjóðverja. Ísland spilar því um fimmta sætið við Króata á HM og er jafnframt öruggt með sæti í forkeppni Ólympíuleikanna. Norðmenn og Spánverjar gerðu okkur greiða því ef þau höfðu tapað sínum leikjum hefðu íslensku strákarnir þurft að vinna Frakka til þess að sleppa við það að spila um níunda sætið á mótinu. Nú er líka ljóst að það er ekkert undir fyrir íslenska liðið í leiknum við Frakka á eftir. Spánverjar sýndu styrk sinn á móti Ungverjum og voru með gott forskot nánast allan leikinn. Liðið spilaði á öllu leikmönnum sínum og er til alls líklegt í undanúrslitunum. Spánverjar byrjuðu leikinn vel og komust í 4-1 og 8-4. Ungverjar skoruðu þá 5 mörk gegn 1 á sex mínútna kafla og náðu að jafna í 9-9.Spánverjar komust aftur tveimur mörkum yfir, í bæði 11-9 og 12-10 en Ungverjar náðu síðan að jafna metin aftur í 12-12 og staðan var síðan 13-13 í hálfleik. Nándor Fazekas varði þrjú fyrstu skot Spánverja í seinni hálfeik en spænska liðið skoraði engu að fjögur fyrstu mörk hálfleiksins og komst í 17-13. Ungverjar minnkuðu muninn aftur í tvö mörk, 17-15 og 18-16 en spænska liðið svaraði því með þremur mörkum í röð og komst fimm mörkum yfir 21-16. Spánverjar héldu góðu forskoti út leikinn, Ungverjar náðu að minnka muninn við og við en þá virtist spænska liðið alltaf geta bætt í og aukið muninn aftur. Iker Romero fór á kostum hjá Spáni og skoraði 9 mörk í leiknum en þeir Joan Canellas, Albert Rocas, Christian Ugalde og Viran Morros voru allir með þrjú mörk. Leiknum var lýst beint á Boltavaktinni: Spánn - Ungverjaland
Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira