Friðjón aðstoðar Bjarna Ben 13. ágúst 2010 09:21 Friðjón R. Friðjónsson
Friðjón R. Friðjónsson tekur í dag tímabundið við starfi aðstoðarmanns Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Sigurður Kári Kristjánsson var aðstoðarmaður Bjarna Benediktsson þar til hann tók sæti á þingi í apríl síðastliðnum. Það gerði hann þegar að Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálftæðisflokksins, tók sér leyfi frá þingstörfum á meðan sérstakur saksóknari skoðar hvort tilefni sé til að taka málefni sem snúa að peningamarkaðssjóðum bankanna til rannsóknar. Illugi var í stjórn Sjóðs 9 hjá Glitni. Friðjón stundaði nám í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur um 12 ára skeið starfaði við upplýsingatækni og miðlun. Friðjón hefur undanfarið starfað sem almannatengill hjá Góðum samskiptum en frá 2007 til ársloka 2009 bjó hann í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington D.C. Þar starfaði hann við vefmiðlun og ráðgjöf, bæði sjálfstætt og hjá Globescope Inc. Frá 2002 til 2007 starfaði hann sem sérfræðingur á rekstrarskrifstofu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Frá 2000 til 2002 vann hann sem vefforritari og viðskiptastjóri á Íslensku vefstofunni. Á meðan Friðjón dvaldi í Bandaríkjunum sótti hann námskeið og fyrirlestra um kynningarmál og skipulag stjórnmálastarfs hjá hugveitum demókrata og repúblikana. Friðjón hefur gengt mörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann sat í stjórn Heimdallar 1994-1996, í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1999-2005 og var varaformaður sambandsins 2003 til 2005. Hann hefur setið í stjórnum hverfafélaga Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og í stjórnum málefnanefnda flokksins. Hann er kvæntur Elizabeth B. Lay arkitekt og eiga þau tvær dætur.
Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira