Er orðinn goðsögn hérna Henry Birgir Gunnarsson skrifar 10. maí 2010 15:00 Ragnar Snær Njálsson.
Það gengur mikið á hjá handknattleikskappanum Ragnari Snæ Njálssyni þessa dagana. Hann er búinn að framlengja samningi sínum við þýska C-deildarfélagið Bad Neustadt og er þess utan nýkominn úr aðgerð. „Þetta var svakaaðgerð sem ég fór í. Ég fékk högg fyrir nokkru síðan og þegar ég var rannsakaður kom í ljós risaskemmd í brjóskinu í hnénu. Þetta leit alls ekki nógu vel út en ég kláraði nú samt tímabilið," sagði Ragnar Snær við Vísi en hann lagðist svo undir hnífinn í lok tímabilsins. „Þetta var mun stærri aðgerð en þetta átti að vera. Ég má ekki stíga í fótinn i sex vikur. Það var samt gott að þetta var gert núna svo ég verði klár í slaginn þegar næsta tímabil byrjar," sagði Ragnar en hann var heppinn að upp komst um brjóskskemmdirnar í tíma. „Læknirinn sagði að ef aðgerðin hefði ekki verið gerð núna þá hefði ég líklega ekki spilað handbolta aftur. Ég hefði þess utan líklega lent í vandræðum með að labba eftir nokkur ár. Ég var því heldur betur heppinn." Eins og áður segir er Ragnar Snær búinn að framlengja við Bad Neustadt til eins árs og hann er hæstánægður með það. „Ég er virkilega sáttur við að vera hér áfram. Þetta er flott félag og það er virkilega vel hugsað um mann hérna. Liðið ætlar sér upp um deild næsta vetur og það er mikill hugur í mönnum. Líka mikil stemning fyrir handbolta hérna og alltaf full höll," sagði Ragnar sem hefur sjálfur verið að spila vel og segist vera kominn í guðatölu hjá stuðningsmönnum félagsins. „Það hefur gengið rosalega vel hjá mér og ég er bara strax orðinn goðsögn hjá stuðningsmönnum félagsins. Það er ekkert leiðinlegt. Við unnum einhverja átta leiki í röð þar sem mér gekk mjög vel og áhorfendurnir tóku ástfóstri við mig. Það er ekki hægt að kvarta yfir því," sagði Ragnar jákvæður á spítalanum en hann verður væntanlega byrjaður að æfa eftir tíu vikur.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira