Níunda tapið í röð hjá liði Detroit Pistons Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2010 12:00 Dirk Nowitzki í baráttunni við Carl Landry í Texas-slagnum í nótt. Mynd/AP
Detroit Pistons tapaði sínum níunda leik í röð í NBA-deildinni í nótt þegar liðið tapaði 87-98 á heimavelli fyrir Chicago Bulls. San Antonio Spurs vann sinn fjórða leik í röð og Houston Rockets vann Dallas Mavericks í Texas-slagnum. Derrick Rose var með 22 stig fyrir Chicago Bulls í sigrinum á Detroit og Joakim Noah bætti við 15 stigum og 21 frákasti en þetta var fyrsti útisigur liðsins í sex vikur. Rodney Stuckey var með 22 stig fyrir Detroit Pistons og Ben Gordon bætti við 21 stigi á móti sínum gamla félagi. Detroit Pistons hefur í fyrsta sinn síðan 2000-01 tímabilið tapað tíu fleiri leikjum en liðið hefur unnið. Tim Duncan var með 23 stig og 10 fráköst í fjórða sigri San Antonio Spurs í röð en liðið vann þá öruggan 30 stiga sigur á Miami Heat, 108-78. Manu Ginobili bætti við 18 stigum fyrir Spurs-liðið sem hefur unnið 10 af síðustu 12 leikjum sínum. Michael Beasley skoraði 26 stig fyrir Miami en Dwyane Wade var bara með 16 stig. Aaron Brooks skoraði 30 stig í 97-94 sigri Houston Rockets á Dallas Mavericks í Texas-slagnum. Jason Terry var með 20 stig fyrir Dallas. Kevin Durant (31 stig) braut 30 stiga múrinn í sjötta leiknum í röð þegar Oklahoma City Thunder vann 87-86 sigur á Utah Jazz. Nick Collison tryggði Oklahoma City sigur á vítalínunni 4,5 sekúndum fyrir leikslok. Carlos Boozer var með 17 stig fyrir Utah. Chris Kaman var með 26 stig og 10 fráköst í 104-88 sigri Los Angeles Clippers á Philadelphia 76ers í síðasta NBA-leiknum á árinu 2009. Lou Williams var með 19 stig fyrir Philadelphia og Elton Brand skoraði 17 stig í fyrsta útileik sínum á móti Clippers síðan að hann yfirgaf félagið.
NBA Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira