Innlent

Kaupþingsmenn: Höfðu ekki efni á lystisnekkju

SB skrifar
Hreiðar Már og Sigurður Einarsson á góðri stund.
Hreiðar Már og Sigurður Einarsson á góðri stund.

Fjárhagsvandræði hrjáðu Kaupþingsmenn í febrúar 2008. Til að bæta stöðu sína varpar Magnús Guðmundsson fram þeirri hugmynd í tölvupósti að leigja út lystisnekkju þeirra til þriðja aðila. Pósturinn birtist í rannsóknarskýrslunni.

Tölvupósturinn er dagsettur 17 febrúar og eru viðtakendurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, Hreiðar Már Sigurðsson, Steingrímur Kárason, Ármann Þorvaldsson og Sigurður Einarsson.

„Það þarf að gera fleirra en það sem gott þykir, og nú er komið að því að skrifa smá um Mariu, að því að ég hef svo lítið að gera, þá virðist sem þetta hafi endað mínum herðum :-) dallurinn verður laus úr slipp um miðjan April, og getur farið hvert sem er í miðjarðarhafinu og Adriarhafinu. Grísku eyjarnar, austurströnd Italíu, vesturströnd Króatíu væru perfect á þessum tíma, Ég hef fengið fyrirspurnir útí dallinn frá Edminston, Armani og í gegnum Richard sem sér um hann. Ég hef ákveðið að leigja hann út (nema þið óskið eftir öðru) á eur 200.000 nettó til okkar á viku til aðila utan hópsins. Mín hugmynd er að leigja hann út í ca 6-8 vikur sem myndi hjálpa til með rekstrarkostnað sem er 2,7 milljónir. Ef þið viljið taka frá vikur í sumar þá þarf ég að blokkera það frá leigunni og við þurfum að ákveða hver kostnaðurinn eigi að vera við það, ég legg til 75 til 125k á viku, tvær vikur á mann og þá er „hagnaður" af rekstrinum eftir fjarmagnskostnað. En við tökum allir á besta tíma þá fáum við væntanleg ekki góða leigu frá 3 aðila."

Magnús varpar fram verðhugmyndum og endar á að stinga upp á því að staðan verði aftur tekin í haust.

"... ef við erum ríkir við getum haldið áfram, ef við erum enn fátækir seljum við dallinn. Eftir breytingar þá reiknast mér til að snekkjan standi í eur 25 m með fjármagnskostnaði frá því í sumar og stendur hún meira en vel undir því verði þar sem eftirspurn er enn mjög mikil."

Magnús hefur þó áhyggjur af umtali fólks.

"Mér líður best persónuleg og vinnulega með að segja að við leigjum dallinn en eigum hann ekki, enda kemur engum það við, en þið vitið hvað fólk talar mikið [...]"







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×