18. október Guðrún Pétursdóttir skrifar 14. október 2010 06:00 Kosningar til fyrirhugaðs stjórnlagaþings verða einstakar því að Alþingi hefur framselt til þjóðarinnar valdið til að eiga frumkvæði að endurskoðun stjórnarskrárinnar. Í stað þess að Alþingi skipi menn úr sínum röðum til verksins er þjóðinni falið að kjósa til þess sérstakt þing. Allir sem eru kjörgengir til Alþingis mega bjóða sig fram (nema fáeinir tilgreindir aðilar eins og forsetinn), án tillits til flokka, hagsmuna eða kjördæma. Landið verður eitt kjördæmi og allir hafa jafnan atkvæðarétt. Hvenær í sögu okkar hefur þetta gerst? Svarið er einfalt: Aldrei! Stjórnlagaþingið mun semja frumvarp að nýjum stjórnarskipunarlögum - eða stjórnarskrá - sem lagt verður fyrir Alþingi til meðferðar og samþykktar. Margir hafa hnotið um þessa staðreynd og haft á orði að óþarft sé að Alþingi sé að skipta sér af þessu. Því er til að svara að sú stjórnarskrá sem nú er í gildi kveður skýrt á um hvernig breyta megi stjórnarskránni. Það má aðeins gera með því að Alþingi samþykki breytingarnar tvisvar sinnum og kosningar séu haldnar á milli. Af þessu ákvæði erum við bundin. Hvernig þessu verður háttað í nýju stjórnarskránni er annað mál. Því meiri eindrægni sem ríkir á stjórnlagaþingi, þeim mun sterkari verður staða frumvarpsins sem það leggur fram og meiri líkur á að Alþingi taki það til meðferðar með litlum eða engum breytingum. Það skiptir höfuðmáli að stjórnlagaþing verði vel skipað. Stuðlum að því og hvetjum gott fólk til að bjóða sig fram. Mig langar enn fremur að vekja athygli á því að framboðsfrestur til stjórnlagaþings rennur út á hádegi 18. október 2010. Þá þurfa frambjóðendur að hafa sent til landskjörstjórnar gögn um framboð sitt: framboðsyfirlýsingu, kynningarefni ásamt mynd, og lista með nöfnum a.m.k. 30 meðmælenda. Munum að hvert okkar má aðeins mæla með einum frambjóðanda. Tveir vottar þurfa að staðfesta undirskrift meðmælandans, eins og oft er á opinberum skjölum. Sömu menn mega votta undirskrift margra meðmælenda - og meðmælendur mega sjálfir vera vottar hjá öðrum frambjóðendum. Upplýsingar um kosningarnar og skjölin sem þarf að fylla út má finna á vefsíðunni www.kosning.is Hafi menn ekki aðgang að tölvu og neti má hafa samband við skrifstofu stjórnlagaþings í síma 422-4400. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson Skoðun Skoðun Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Kosningar til fyrirhugaðs stjórnlagaþings verða einstakar því að Alþingi hefur framselt til þjóðarinnar valdið til að eiga frumkvæði að endurskoðun stjórnarskrárinnar. Í stað þess að Alþingi skipi menn úr sínum röðum til verksins er þjóðinni falið að kjósa til þess sérstakt þing. Allir sem eru kjörgengir til Alþingis mega bjóða sig fram (nema fáeinir tilgreindir aðilar eins og forsetinn), án tillits til flokka, hagsmuna eða kjördæma. Landið verður eitt kjördæmi og allir hafa jafnan atkvæðarétt. Hvenær í sögu okkar hefur þetta gerst? Svarið er einfalt: Aldrei! Stjórnlagaþingið mun semja frumvarp að nýjum stjórnarskipunarlögum - eða stjórnarskrá - sem lagt verður fyrir Alþingi til meðferðar og samþykktar. Margir hafa hnotið um þessa staðreynd og haft á orði að óþarft sé að Alþingi sé að skipta sér af þessu. Því er til að svara að sú stjórnarskrá sem nú er í gildi kveður skýrt á um hvernig breyta megi stjórnarskránni. Það má aðeins gera með því að Alþingi samþykki breytingarnar tvisvar sinnum og kosningar séu haldnar á milli. Af þessu ákvæði erum við bundin. Hvernig þessu verður háttað í nýju stjórnarskránni er annað mál. Því meiri eindrægni sem ríkir á stjórnlagaþingi, þeim mun sterkari verður staða frumvarpsins sem það leggur fram og meiri líkur á að Alþingi taki það til meðferðar með litlum eða engum breytingum. Það skiptir höfuðmáli að stjórnlagaþing verði vel skipað. Stuðlum að því og hvetjum gott fólk til að bjóða sig fram. Mig langar enn fremur að vekja athygli á því að framboðsfrestur til stjórnlagaþings rennur út á hádegi 18. október 2010. Þá þurfa frambjóðendur að hafa sent til landskjörstjórnar gögn um framboð sitt: framboðsyfirlýsingu, kynningarefni ásamt mynd, og lista með nöfnum a.m.k. 30 meðmælenda. Munum að hvert okkar má aðeins mæla með einum frambjóðanda. Tveir vottar þurfa að staðfesta undirskrift meðmælandans, eins og oft er á opinberum skjölum. Sömu menn mega votta undirskrift margra meðmælenda - og meðmælendur mega sjálfir vera vottar hjá öðrum frambjóðendum. Upplýsingar um kosningarnar og skjölin sem þarf að fylla út má finna á vefsíðunni www.kosning.is Hafi menn ekki aðgang að tölvu og neti má hafa samband við skrifstofu stjórnlagaþings í síma 422-4400.
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun