Skoðun

„Þegar eftirlitið vantar“

Lúðvíg Lárusson skrifar

Kveikjan að greininni er vegna skýrslunnar um vistheimilin að Jaðri, Silungapolli og Reykjahlíð. Brynja, fréttakona Kastljóssins, ræddi við Rósu Ólöfu um dvöl hennar í Reykjahlíð og spurði hvernig hún telji stöðuna í dag. Rósa Ólöf svaraði að vegna fátæktar eru börn enn í dag látin axla ábyrgð langt umfram getu sína. Enn má spyrja hvort ofbeldi, kynferðislegt sem andlegt sé enn við lýði í dag.

Sagan segir að ákveðin brotalöm hefur verið í samfélaginu sem veldur skelfilegum hörmungum aftur og aftur. Samnefnarinn er agaleysi og ófullnægjandi eftirlit. Undanfarið má nefna nokkur atriði sem bera þennan samnefnara eins og örlög drengjanna á Breiðavíkurheimilinu, efnahagshrunið, aðdragandi og afleiðingar þess þar sem lykilstofnanir hafi brugðizt skyldum sínum eins og Fjármálaeftirlitið, Seðlabankinn. Þingmenn flýja örlög landsdómsins. Ætla þeir þá að nýta hefðbundna ákæruleið í staðinn?

Samnefnarinn þarf að vera opinbert regluverk sem skilgreinir hin nauðsynlegu úrræði til að afstýra mistökum og hörmungum af mannlegu eðli. Augljóst er að þar sem börn eru án nægilegs eftirlits, þar er aukin hætta á misnotkun. Einn af rómversku keisurunum laugaði sig oft með litlum drengjum sem hann kallaði „fiskana" sína. Sama gildir um fé sem er án hirðis þar eru freistingarnar miklar, fáar reglur, ójafnvægi í valdahlutföllum stofnana sem eiga að gæta og vera gætt. Það hafa verið gerðar nokkrar skýrslur nýlega um misþyrmingar og vanrækslu á börnum og misbeitingu valds í stjórnun efnahagsmála. Hér verður ljóst að hið raunverulega og virka eftirlit vantar en hvenær kemur það? Skilgreina þarf hvaða áhættuþættir hindra að börn á vistheimilum og eigin heimilum njóti alltaf fullrar verndar og fylgja þeim eftir með virku eftirliti.

Til samanburðar um virkt eftirlit má nefna hið alþjóða flugöryggi og þá vinnu sem er lögð í það. Hér hafa yfirvöld valið að leggja þrotlausa vinnu í að auka öryggi á öllum sviðum allt frá flugvélaframleiðslu til daglegs flugrekstrar. Í Bandaríkjunum einum eru yfir nítján þúsund farþegaflug daglega og líkurnar á að lenda í flugslysi þarf viðkomandi að vera yfir 90 ár samfleytt á flugi. Væri farþegaflug við lýði ef íslenzka fjármálaöryggið og vernd barna gilti?

Kjarninn er sá að þeir sem bera ábyrgð í hvaða máli sem er verða að hafa siðferðilegt þrek til að axla hana og koma á fullkomnu eftirliti með áhættuþáttum. Þannig myndi svarið til Brynju fréttakonu vera að ef skýrt, opið og fullkomið eftirlit sé með högum barna þá séu málin komin í lag en annars ekki. Höfum við þrek til að gera betur?




Skoðun

Sjá meira


×