Til hvers að sækja um aðild að ESB? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar 28. september 2010 06:00 Eftir hrunið í október 2008 stóðu íslendingar frammi fyrir geigvænlegum verkefnum. Landsmenn sumir áttu þó erfitt með að átta sig á stöðunni og hver yrðu mikilægustu viðfangsefni stjórnmálanna næstu misserin. Kom það meðal annars fram í kosningabaráttunni fyrir alþingiskosningarnar 2009. Á stundum mátti halda að ekkert hefði breyst þegar mesta púðrið á kosningafundum fór í að krefja frambjóðendur um loforð varðandi vegabætur eða önnur opinber útgjöld. Stóru viðfangsefnin voru lítið rædd. Til dæmis á hvern hátt ætti að hækka skatta þó öllum hugsandi mönnum hafi mátti vera ljóst að þá þurfti að hækka. Það var mitt mat að tvö stærstu viðfangsefnin væru annars vegar að loka fjálagagatinu og hins vegar gjaldmiðilsmálið. Það hefur gengið þokkalega að fást við hallann á fjárlögum með skattahækkunum og niðurskurði á ríkiútgjöldum. Lítið hefur hins vegar verið rætt um gjaldmiðilsmálið, það er að segja hvaða gjaldmiðil við viljum nota til framtíðar og í hvernig kerfi. Kostirnir þar eru einkum þrír: •Að vera með íslensku krónuna áfram. •Nota aðra mynt með einhliða upptöku eða hugsanslega í samstarfi við viðkomandi ríki. •Ganga inn í Evrópusambandið og taka upp evru. Það hefur sína kosti og galla að vera áfram með íslenska krónu en sú leið gæti reynst þrautin þyngri. Traustið á þessum örgjaldmiðli hefur minnkað mikið, ekki síst hjá Íslendingum sjálfum. Afleiðingar vantraustsins koma þó ekki í ljós á meðan gjaldeyrishöft eru við lýði. Að vera með íslenska krónu og gjaldeyrishöft til frambúðar er hins vegar afar slæmur kostur af mörgum ástæðum. Þá yrðu Íslendingar t.d. að hætta að vera hluti af Evrópska efnahagssvæðinu. Hins vegar er ekki ljóst hvort íslensk króna án gjaldeyrishafta, þ.e. á frjálsum markaði, sé farsæl leið heldur. Ef íslensk heimili hafa það lítið traust á krónunni að þau skipta sparnaði sínum við fyrsta tækifæri í öruggari gjaldmiðla þá er ekki hægt að vera með krónuna nema með því að hafa vexti svo háa að það vegi upp áhættuálagið á krónunni. Íslenskt atvinnulíf þarf þá að borga margfalt meiri fjármagnskostnað en samkeppnisaðilar í nágrannalöndunum. Slíkt mun koma niður á lífskjörum Íslendinga. Það kemur vel til greina að taka upp annan gjaldmiðil einhliða en það er vandasamt bæði tæknilega og pólitískt og þá seðla og mynt sem setja þarf inn í hagkerfið í skiptum fyrir íslenskar krónur þarf að kaupa. Það er kostnaður upp á milljarða. Upptaka evru með aðild að Evrópusambandinu felur það í sér að Íslendingar myndu, að eðlilegum skilyrðum uppfylltum, geta notað næststærsta gjaldmiðil heims sem sína heimamynt auk þess sem stór hluti utanríkisviðskipta færi fram í heimamyntinni. Þær evrur sem þyrfti að setja inn í hagkerfið í skiptum fyrir íslenskar krónur fengjum við á silfurfati, ekki þyrfti að kaupa þær. Á bak við myntina stæði síðan Seðlabanki Evrópu í stað Seðlabanka Íslands. Þetta hlýtur að vera besti kosturinn í gjaldmiðilsmálinu ef við getum sættum okkur við aðild að Evrópusambandinu. Það er því ekki einasta skynsamlegt að kanna hvort aðild að ESB geti orðið ásættanleg fyrir okkur heldur beinlínis algjörlega óábyrgt að gera það ekki. Slíkt verður aldrei fullkannað nema með aðildarumsókn sem leiðir til samnings sem þjóðin getur tekið afstöðu til. Með aðildarumsókn fæst úr því skorið hvort Evrópusambandið býður Ísland velkomið í fjölskylduna eða ekki. Ekki veit ég hvernig ég greiði atkvæði í kosningu um aðildarsamninginn, það fer allt eftir því hvernig hann verður. En ef hann verður það óaðgengilegur að hann verður felldur þá er í öllu falli hægt að segja með vissu að þessi möguleiki hafi verið fullkannaður og komi því ekki lengur til greina. Þá verðum við að snúa okkur að hinum möguleikunum tveimur, að vera áfram með íslenska krónu eða taka upp aðra mynt einhliða þó þeir séu báðir töluvert verri en evra með Evrópusambandsaðild. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Viljum við stjórnarandstöðu sem þvælist ekki fyrir? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Lygin um flóttamenn á Íslandi Jón Frímann Jónsson Skoðun Varst þú að kaupa gallaða fasteign? Sara Bryndís Þórsdóttir Skoðun „Glæpir“ Íslendinga Árni Davíðsson Skoðun Mismunun skýrir aukningu erlendra fanga Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Störf án staðsetningar - of hátt flækjustig eða rökrétt framþróun? Hildur Ösp Gylfadóttir,Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir Skoðun Héraðsvötnin eru hjartsláttur fjarðarins Rakel Hinriksdóttir Skoðun Hlúum að persónumiðaðri nálgun í öldrunarþjónustu Margrét Guðnadóttir Skoðun Ef eitthvað væri að marka Bjarna Gunnar Smári Egilsson Skoðun Skólar hafa stigið skrefið með góðum árangri Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Á að hita upp allan Faxaflóann? Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Á tímamótum: Sameinuðu þjóðirnar í 80 ár Vala Karen Viðarsdóttir,Védís Ólafsdóttir skrifar Skoðun Borgar sig að vanmeta menntun? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Samfylkingin hækkar gjöld á háskólanema Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Aðgerðaáætlun í menntamálum ekki markviss Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Hermína Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Héraðsvötnin eru hjartsláttur fjarðarins Rakel Hinriksdóttir skrifar Skoðun Lygin um flóttamenn á Íslandi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Mismunun skýrir aukningu erlendra fanga Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Farsæld barna í fyrirrúmi Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Hlúum að persónumiðaðri nálgun í öldrunarþjónustu Margrét Guðnadóttir skrifar Skoðun Viljum við stjórnarandstöðu sem þvælist ekki fyrir? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólar hafa stigið skrefið með góðum árangri Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varst þú að kaupa gallaða fasteign? Sara Bryndís Þórsdóttir skrifar Skoðun Störf án staðsetningar - of hátt flækjustig eða rökrétt framþróun? Hildur Ösp Gylfadóttir,Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun „Glæpir“ Íslendinga Árni Davíðsson skrifar Skoðun Vörusvik Rafmenntar í nafni Kvikmyndaskóla Íslands og afleiðingar þeirra Böðvar Bjarki Pétursson,Friðrik Þór Friðriksson skrifar Skoðun Fleiri átök = verri útkoma í lestri? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Biðin sem (enn) veikir og tekur Guðlaugur Eyjólfsson skrifar Skoðun Stafrænt netöryggisbelti Hrannar Ásgrímsson skrifar Skoðun Hvert stefnir ráðherra? Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar Skoðun Free tuition Colin Fisher skrifar Skoðun Þegar fólkið okkar langar að deyja Sigurborg Sveinsdóttir,Svava Arnardóttir skrifar Skoðun Why protest works Adam Daniel Fishwick skrifar Skoðun Í senn minning og ákvörðun um framtíð Elliði Vignisson skrifar Skoðun Reynslunni ríkari eftir fjárhagsleg áföll síðustu ára Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn lobbýistanna Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun 7 símtöl í röð - en ekkert fer í gegn Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Áttaviti í öldrunarþjónustu Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Í skjóli hvíta bjargvættarins Yousef Ingi Tamimi skrifar Skoðun Að gjamma á stóra grábjörninn getur haft afleiðingar! Davíð Bergmann skrifar Sjá meira
Störf án staðsetningar - of hátt flækjustig eða rökrétt framþróun? Hildur Ösp Gylfadóttir,Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir Skoðun
Skoðun Aðgerðaáætlun í menntamálum ekki markviss Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Hermína Gunnþórsdóttir skrifar
Skoðun Störf án staðsetningar - of hátt flækjustig eða rökrétt framþróun? Hildur Ösp Gylfadóttir,Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir skrifar
Skoðun Vörusvik Rafmenntar í nafni Kvikmyndaskóla Íslands og afleiðingar þeirra Böðvar Bjarki Pétursson,Friðrik Þór Friðriksson skrifar
Störf án staðsetningar - of hátt flækjustig eða rökrétt framþróun? Hildur Ösp Gylfadóttir,Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir Skoðun