Hve lengi tekur Ölfusá við? Benedikt Jóhannsson skrifar 1. september 2010 06:00 Opið bréf til Elvu Daggar Þórðardóttur, formanns framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar. Sæl Elva Sem gamall Sunnlendingur og unnandi Ölfusár hrökk ég við þegar þú kynntir nýlega áform bæjarstjórnar Árborgar um virkjun í Ölfusá rétt við Selfoss. Líklega eru fá dæmi um að stjórn sveitarfélags taki sjálf frumkvæði að því að höggva í sína stærstu náttúruperlu, en fá bæjarfélög hér á landi geta státað af slíkri náttúrufegurð í hjarta bæjarins, sem Ölfusá er. Tignarleg streymir hún undir brúna, sveipast í hringiðum fram hjá kirkjunni, veltur niður Selfossinn og rennur út í Sandvíkina. Í þessu sambandi velti ég fyrir mér afstöðu Selfyssinga til árinnar, en bærinn heitir jú eftir fossi eða flúðum í ánni og sveitarfélagið Árborg er beinlínis kennt við ána. Lengi vel fór allt skólp á Selfossi og frárennsli frá iðnaði beint í ána innan bæjarmarka Selfoss. Eftir stofnun hins nýja sveitarfélags Árborgar, var hins vegar allt frárennsli leitt í einu stóru ræsi niður fyrir þéttbýlið á Selfossi út í Sandvíkina, sem er fyrir landi fyrrum Sandvíkurhrepps. Þessi framkvæmd var styrkt með tugum milljóna frá umhverfisráðuneytinu, sem vissi ekki betur en að frárennslið yrði hreinsað með viðeigandi hætti. Árborg fékk hins vegar undanþágu og frest að mig minnir til ársins 2009 til að fara að reglum og koma hreinsibúnaði á hina stóru skolplögn. Því hefur til skamms tíma mikil mengun verið í ánni við ræsið og fyrir neðan það. Áin lyktar jafnvel af skolpi vel yfir kílómetra fyrir neðan ræsið og klósettpappír, smokkar og dömubindi fljóta með straumnum. Því spyr ég þig Elín. Finnst þér þessi meðferð á Ölfusá sæmandi fyrir Árborgarbúa og þá einkum Selfyssinga, sem hafa lagt metnað í að byggja upp fallegan og hreinlegan bæ? Hver er staðan nú varðandi hreinsibúnað fyrir skólpið og hvað hyggst Árborg gera á næstunni til að hreinsa frárennsli í ána með viðunandi hætti? Fyrst bæjarstjórn Árborgar hefur áhuga á að framleiða orku langar mig einnig að benda á þann möguleika að framleiða rafmagn úr metani frá skólpinu sem nú rennur í ána, en fréttir hafa borist frá Hollandi um að þar sé verið að byggja orkuver sem framleiða rafmagn úr skít frá dýrum og fólki. Með slíkri orkuframleiðslu mætti með umhverfisvænum hætti afla tekna fyrir sveitarfélagið um leið og ánni er hlíft. Árborgarbúar gætu þannig vísað veginn fyrir önnur sveitarfélög í landinu. Reyndar er þegar hafin framleiðsla á metangasi úr kúamykju á sveitabæ skammt fyrir ofan Selfoss og geri ég ráð fyrir að sú mykja sé í grunninn ekki ólík þeirri mykju sem Selfyssingar gefa nú frá sér beint út í Ölfusá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar