Hvað þýðir þögnin? 16. ágúst 2010 06:00 Á morgun fer fram fyrirtaka í dómsmáli ríkisins gegn nímenningunum sem eru ákærðir fyrir árás á Alþingi, 8. desember 2008. Frá því að málið var þingfest fyrir hálfu ári og því fylgt eftir með hasarfréttamennsku og yfirlýsingagleði helstu fjölmiðla, hefur harðri gagnrýni á ákærurnar vaxið fiskur um hrygg. Gagnrýnin og opinberun sönnunargagna málsins hefur leitt af sér bitra þögn ritstjóra fjölmiðlanna. Í maí sýndi Kastljósið myndbandsupptöku úr eftirlitsmyndavélum Alþingis, sem sýndi að undirstöður ákæranna eru á engum rökum reistar. Við gerð þáttarins neituðu Lára V. Júlíusdóttir, ríkissaksóknari, og Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, að tjá sig. Enginn hinna stóru fjölmiðlanna fjallaði um þáttinn fyrr en Stöð 2 sagði frá afskiptum Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, af ummælum Jóns Ólafssonar, heimspekings, um dómsmálið í útvarpinu. Ásta fullyrti ranglega um staðreyndir málsins og skammaði Jón fyrir hans skoðun. En svo vildi hún ekki tjá sig við Stöð 2. Afskiptasemin er undarleg fyrir þær sakir að þegar henni voru afhendar undirskriftir 700 manns, sem sögðust samsek nímenningunum vegna árása á Alþingi veturinn 2008-2009 og kröfðust þess að málið félli niður ellegar þau öll ákærð samkvæmt sömu lagagreinum, sagði hún að sér kæmi málið ekki við. Enn hefur enginn tekið ábyrgð á beitingu 100. greinar hegningarlaga, sem mælir fyrir um eins árs til lífstíðar fangelsisvistar, síðan Helgi Bernódusson og Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, bentu á hvor annan í janúar. Enginn fjölmiðill hefur reynt að komast að hinu sanna. Hvers vegna er þögnin eina svar þessara afla? Má vera að þau einfaldlega hafi engin svör? Að sannleikur þessa máls sé nú þegar á yfirborðinu – málið sé einungis pólitískar ofsóknir í garð andófsfólks? Að nú, þegar sannleikur málsins liggur fyrir, færður uppá yfirborðið af nímenningunum og samherjum þeirra, sé eina nothæfa vopn ríkisins hinn refsandi armur þess, dómararnir? Ef herkænska ríkisins er að þegja um málið og gagnrýni í garð þess, tekst prýðilega að sýna fram á eðlislægan en vel falinn fasisma ríkisins. Verði þeim af því! Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson og Steinunn Gunnlaugsdóttir, listamenn og tvö hinna ákærðu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson Skoðun Skoðun Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Sjá meira
Á morgun fer fram fyrirtaka í dómsmáli ríkisins gegn nímenningunum sem eru ákærðir fyrir árás á Alþingi, 8. desember 2008. Frá því að málið var þingfest fyrir hálfu ári og því fylgt eftir með hasarfréttamennsku og yfirlýsingagleði helstu fjölmiðla, hefur harðri gagnrýni á ákærurnar vaxið fiskur um hrygg. Gagnrýnin og opinberun sönnunargagna málsins hefur leitt af sér bitra þögn ritstjóra fjölmiðlanna. Í maí sýndi Kastljósið myndbandsupptöku úr eftirlitsmyndavélum Alþingis, sem sýndi að undirstöður ákæranna eru á engum rökum reistar. Við gerð þáttarins neituðu Lára V. Júlíusdóttir, ríkissaksóknari, og Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, að tjá sig. Enginn hinna stóru fjölmiðlanna fjallaði um þáttinn fyrr en Stöð 2 sagði frá afskiptum Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, af ummælum Jóns Ólafssonar, heimspekings, um dómsmálið í útvarpinu. Ásta fullyrti ranglega um staðreyndir málsins og skammaði Jón fyrir hans skoðun. En svo vildi hún ekki tjá sig við Stöð 2. Afskiptasemin er undarleg fyrir þær sakir að þegar henni voru afhendar undirskriftir 700 manns, sem sögðust samsek nímenningunum vegna árása á Alþingi veturinn 2008-2009 og kröfðust þess að málið félli niður ellegar þau öll ákærð samkvæmt sömu lagagreinum, sagði hún að sér kæmi málið ekki við. Enn hefur enginn tekið ábyrgð á beitingu 100. greinar hegningarlaga, sem mælir fyrir um eins árs til lífstíðar fangelsisvistar, síðan Helgi Bernódusson og Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, bentu á hvor annan í janúar. Enginn fjölmiðill hefur reynt að komast að hinu sanna. Hvers vegna er þögnin eina svar þessara afla? Má vera að þau einfaldlega hafi engin svör? Að sannleikur þessa máls sé nú þegar á yfirborðinu – málið sé einungis pólitískar ofsóknir í garð andófsfólks? Að nú, þegar sannleikur málsins liggur fyrir, færður uppá yfirborðið af nímenningunum og samherjum þeirra, sé eina nothæfa vopn ríkisins hinn refsandi armur þess, dómararnir? Ef herkænska ríkisins er að þegja um málið og gagnrýni í garð þess, tekst prýðilega að sýna fram á eðlislægan en vel falinn fasisma ríkisins. Verði þeim af því! Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson og Steinunn Gunnlaugsdóttir, listamenn og tvö hinna ákærðu
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar