NBA: Nowitzki með þrennu, Lakers tapaði og New Jersey vann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2010 09:00 Dirk Nowitzki fagnar í nótt. Mynd/AP
Dirk Nowitzki átti flottan leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar Dallas Mavericks vann mikilvægan sigur á Denver Nuggets í baráttunni um annað sætið í Vesturdeildinni. Dirk Nowitzki var með 34 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar í 109-93 sigri Dallas en þetta var aðeins í annað skiptið á ferlinum sem hann nær þrefaldri tvennu. Shawn Marion var með 21 stig fyrir Dallas en J.R. Smith var stigahæstur hjá Denver með 27 stig. Þetta var fimmta tap Denver í síðustu sex leikjum en Carmelo Anthony var aðeins með 10 stig í leiknum þar sem hann hitti bara úr 3 af 16 skotum.New Jersey Nets vann sinn tíunda leik á tímabilinu þegar liðið vann 90-84 sigur á San Antonio Spurs þar sem Brook Lopez var með 22 stig og 12 fráköst. Þar með með er ljóst að Philadelphia 76ers liðið frá 1972-73 á áfram eitt versta árangurinn frá upphafi en liðið vann aðeins 9 af 82 leikjum sínum það tímabil.Chris Paul var með 15 stig og 13 stoðsendingar þegar New Oerleans Hornets vann 108-100 sigur á meisturunum í Los Angeles Lakers en þetta var fyrsta tvennan hans Paul síðan hann snéri aftur eftir hnémeiðsli. Kobe Bryant var með 31 stig fyrir Lakers og Pau Gasol bætti við 26 stigum og 22 fráköstum.Tvíeykið Carlos Boozer (26 stig og 14 fráköst) og Deron Williams (23 stig og 14 stoðsendingar) sáu til þess að Utah náði fyrsta sætinu í Norðvestur-deildinni af Denver með 103-98 sigri á New York Knicks. Al Harrington var með 26 stig og 17 fráköst hjá New York.Chris Bosh var með 22 stig og 11 fráköst og Hedo Turkoglu skoraði stóra körfu undir lokin þegar Toronto Raptors vann 103-101 sigur á Charlotte Bobcats.Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt: Charlotte Bobcats-Toronto Raptors 101-103 New Jersey Nets-San Antonio Spurs 90-84 New Orleans Hornets-Los Angeles Lakers 108-100 Dallas Mavericks-Denver Nuggets 109-93 Utah Jazz-New York Knicks 103-98
NBA Mest lesið „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Körfubolti „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Handbolti Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Fótbolti Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Sjá meira