Sáttameðferð við hjónaskilnaði Leifur Runólfsson skrifar 6. október 2010 15:29 Að skilja við maka er jafnstór ef ekki stærri ákvörðun en að ganga í hjúskap. Þegar fólk ákveður að enda hjúskap, þá lýkur stórum kafla í lífi viðkomandi aðila og tengdum aðilum. Undirritaður lögmaður hefur sjálfur starfað við að veita fólki aðstoð sem er að skilja skiptum, ásamt því að hafa gefið út fjöldann allann af leyfisbréfum til skilnaðar að borði og sæng og svo lögskilnaðar í krafti stöðu sinnar sem þáverandi fulltrúi sýslumanns. Eigi hjón saman barn eða börn undir 18 ára aldri, þá þurfa þau að framvísa sáttavottorði sem gefið er út af presti eða forstöðumanni trúfélags. Séu hjón utan trúfélags, er venjan að sýslumaður kanni grundvöll sátta. Er undirritaður gekk í gegnum skilnað sjálfur, þá leitaði hann ásamt þáverandi eiginkonu sinni til prests til að fá útgefið sáttavottorð. Presturinn spurði hvort að um hjúskaparbrot væri að ræða og þegar því var svarað neitandi, þá gaf hann út sáttavottorðið. Ekki var leitað meiri sátta en það hjá viðkomandi presti í það sinn. Undirritaður lenti í því sem starfandi sýslumannsfulltrúi að fá hjón í viðtal sem sóttu um skilnað að borði og sæng. Annar aðilinn mætti með sáttavottorð. Í viðtali undirritaðs við hjónin kom í ljós að sá sem gaf út vottorðið hafði aldrei hitt né talað við hinn aðilann og því ekki hægt að segja að reynt hafi verið á neina sáttamiðlun. Eins og að ofan greinir, getur reynt á sáttamiðlun hjá sýslumanni og hefur það í einstaka tilfellum leitt til þess að pör hafi hætt við að slíta sambúð eða sækja um skilnað. Þann 12. janúar s.l., mátti lesa frétt inn á vef Dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins um kynningu á frumvarpi um breytingar á ákvæðum barnalaga um forsjá, búsetu og umgengni. Þarna voru kynntar helstu breytingar sem átti að gera á barnalögum, m.a. þá að dómurum yrði heimilað að dæma sameiginlega forsjá. Einnig átti að skylda foreldra til að leita sátta hjá sérstökum sáttamanni áður en unnt yrði að krefjast úrskurðar eða höfða mál um forsjá, lögheimili barns, umgengni barns við foreldra, dagsektir eða aðför. Markmiðið með sáttameðferðinni yrði að hjálpa foreldrum að gera samning um þá lausn sem væri barninu fyrir bestu. Sáttamaðurinn skyldi gæta þess að vera hlutlaus í starfi sínu. Ef sátt tækist ekki milli foreldra, þá gæfi sáttamaður út vottorð um sáttameðferðina þar sem kæmi fram hvernig meðferðin hefði farið fram, helstu ágreiningsatriði og afstaða aðila, auk sjónarmið barnsins nema það sé talið ganga gegn hagsmunum barnsins. Ef annar hvor aðilinn myndi ekki mæta til sáttameðferðar eftir ítrekaðar boðanir, þá mætti einnig gefa út sáttavottorð. Þarna átti sem sé að koma á mun ítarlegri sáttameðferð en þá sem er við lýði í dag. Þess skal þó sérstaklega getið að þessi sáttameðferð var ekki hugsuð vegna hjónaskilnaða en í raun má spyrja sig að því hvort það sé ekki einmitt nauðsynlegt að hafa svo ítarlega sáttameðferð einnig við skilnaði og sambúðarslit, þegar börn eru í spilinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun