Skjaldborgarríkisstjórnin og eggjamennirnir Jón Hjaltason skrifar 14. október 2010 06:00 Ráðherrarnir okkar eru furðulostnir yfir eggjum og skítkasti er þeir verða fyrir nú um stundir. Og það þrátt fyrir skjaldborgina sem þeir hafa slegið um heimilin. Í sömu andrá véla þeir með ráðherrastóla eins og um lífið sjálft sé að tefla, makka um réttarhald yfir fyrrverandi forsætisráðherra, gera sitt besta til að ógilda gerða samninga við erlenda fjárfesta og kappkosta að telja okkur trú um að svokölluð „tilskipun um innstæðutryggingu nr. 94/19/EB“ geri okkur skylt að greiða Icesave. Það er kannski dæmigert fyrir skynsemina í störfum núverandi ríkisstjórnar að þessi tilskipun um innstæðutryggingar leggur engar slíkar skyldur á herðar íslensku þjóðinni, þvert á móti bannar hún stjórnvöldum að axla þannig ábyrgð fyrir hönd lánastofnana. Svo hlýðum við á hámenntaðan hagfræðiprófessor segja skjaldborgina eiginlega aðeins vera fyrir fólk sem eigi peninga! Allt er á sömu bókina lært. Þetta, og fleira, hefur verið margtuggið en samt þykjast ráðherrarnir enn ekki skilja. Og undrast eggjakastið. Þeim þykir ekkert óeðlilegt að fitla við laun fólks til lækkunar en dettur ekki í hug eitt augnablik að eiga við vísitölur. Þær eru helgur dómur. Jafnvel þegar þeir hækka brennivín trekk í trekk flögrar ekki að þeim að aftengja slíkar hækkanir og lán fólks. Nei, skuldugir skulu gjalda. Líka froðupeningana sem urðu til í hruninu en voru aldrei annað en tölur á pappír. Að vísu setti einhver manndjöfull hornin í þann pakka með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Hugsið ykkur; núverandi skjaldborgar-ríkisstjórn hefur ætíð barist gegn því með kjafti og klóm að hrun-byrðunum væri jafnað í einhverju hlutfalli á milli skuldareigenda og skuldara. Það hefur verið skýlaus stefna núverandi valdhafa að skuldarar greiddu að fullu froðupeningana sem urðu til í hruninu. Hvað gerðist svo þegar dómur féll í undirrétti – um bílalánin – og var óhagstæður peningavaldinu. Hverjir létu þá í sér heyra fyrstir manna? Jú, ráðherrarnir. Sömu menn og eru, að eigin sögn, búnir að slá skjaldborg um heimilin. Fögnuðu þeir niðurstöðunni? Nei, ekki aldeilis, þeir kröfðust hagstæðari kjara til handa lánafyrirtækjunum en samningar kváðu á um. Fyrirtækin verða að fá hærri vexti, já, seðlabankavexti á lánin, annað gengur ekki, predikuðu ráðherrarnir. Af hverju? Jú, forsendurnar brustu. Lánin reyndust ólögleg (sem ráðherrarnir reyndar vissu löngu áður en málið kom fyrir dómstóla en kusu að gera – ekkert – og vörpuðu öndinni töluvert léttar við dóm hæstaréttar). Nú spyrja eggjakastararnir þessa sömu ráðherra: Hvernig má það vera að forsendubrestur virkar aðeins í aðra áttina? Ólögleg lán og lánveitandanum skal bættur skaðinn. Hrun hagkerfis og byrðarnar lagðar óskiptar á skuldugan almenning. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Dánaraðstoð: réttur fárra má ekki skaða aðra Þórhildur Kristinsdóttir,Arna Dögg Einarsdóttir,Sigurdís Haraldsdóttir,Hrönn Harðardóttir,Helga Tryggvadóttir,Guðrún Nína Óskarsdóttir Skoðun Þegar „kerfið“ spilar vörn Jón Þorsteinn Sigurðsson Skoðun Er ný fjármálaáætlun á áætlun? Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson Skoðun Leggjum mannréttindaráð Reykjavíkur niður Helgi Áss Grétarsson Skoðun Hver á stjórnsýsluna? Þórólfur Júlían Dagsson Skoðun Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Börn eiga ekki að alast upp inni í símanum Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Þegar ESB beitir smáþjóð ofríki Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun 30% lækkun skiptir sveitir landsins máli Axel Sæland skrifar Skoðun Er ný fjármálaáætlun á áætlun? Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Á að kenna íslensku við Háskóla Íslands? Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Enginn á að ýta Íslandi inn um bakdyrnar Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Þegar ESB beitir smáþjóð ofríki Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hver á stjórnsýsluna? Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Farsældarlögin: Samþætting án úrræða Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð: réttur fárra má ekki skaða aðra Þórhildur Kristinsdóttir,Arna Dögg Einarsdóttir,Sigurdís Haraldsdóttir,Hrönn Harðardóttir,Helga Tryggvadóttir,Guðrún Nína Óskarsdóttir skrifar Skoðun Leggjum mannréttindaráð Reykjavíkur niður Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Þegar „kerfið“ spilar vörn Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að alast upp inni í símanum Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Bumbubað Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífseigla gæskunnar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvað gerir Íslendinga einstaka? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Vel upplýst þjóð neitar að láta spila með sig Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Börn á krossurum á gangstéttum höfuðborgarsvæðisins Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Háannatími má ekki vera griðland fyrir leyfislausan rekstur Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvort hefja eigi inngöngu í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Ráðherrarnir okkar eru furðulostnir yfir eggjum og skítkasti er þeir verða fyrir nú um stundir. Og það þrátt fyrir skjaldborgina sem þeir hafa slegið um heimilin. Í sömu andrá véla þeir með ráðherrastóla eins og um lífið sjálft sé að tefla, makka um réttarhald yfir fyrrverandi forsætisráðherra, gera sitt besta til að ógilda gerða samninga við erlenda fjárfesta og kappkosta að telja okkur trú um að svokölluð „tilskipun um innstæðutryggingu nr. 94/19/EB“ geri okkur skylt að greiða Icesave. Það er kannski dæmigert fyrir skynsemina í störfum núverandi ríkisstjórnar að þessi tilskipun um innstæðutryggingar leggur engar slíkar skyldur á herðar íslensku þjóðinni, þvert á móti bannar hún stjórnvöldum að axla þannig ábyrgð fyrir hönd lánastofnana. Svo hlýðum við á hámenntaðan hagfræðiprófessor segja skjaldborgina eiginlega aðeins vera fyrir fólk sem eigi peninga! Allt er á sömu bókina lært. Þetta, og fleira, hefur verið margtuggið en samt þykjast ráðherrarnir enn ekki skilja. Og undrast eggjakastið. Þeim þykir ekkert óeðlilegt að fitla við laun fólks til lækkunar en dettur ekki í hug eitt augnablik að eiga við vísitölur. Þær eru helgur dómur. Jafnvel þegar þeir hækka brennivín trekk í trekk flögrar ekki að þeim að aftengja slíkar hækkanir og lán fólks. Nei, skuldugir skulu gjalda. Líka froðupeningana sem urðu til í hruninu en voru aldrei annað en tölur á pappír. Að vísu setti einhver manndjöfull hornin í þann pakka með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Hugsið ykkur; núverandi skjaldborgar-ríkisstjórn hefur ætíð barist gegn því með kjafti og klóm að hrun-byrðunum væri jafnað í einhverju hlutfalli á milli skuldareigenda og skuldara. Það hefur verið skýlaus stefna núverandi valdhafa að skuldarar greiddu að fullu froðupeningana sem urðu til í hruninu. Hvað gerðist svo þegar dómur féll í undirrétti – um bílalánin – og var óhagstæður peningavaldinu. Hverjir létu þá í sér heyra fyrstir manna? Jú, ráðherrarnir. Sömu menn og eru, að eigin sögn, búnir að slá skjaldborg um heimilin. Fögnuðu þeir niðurstöðunni? Nei, ekki aldeilis, þeir kröfðust hagstæðari kjara til handa lánafyrirtækjunum en samningar kváðu á um. Fyrirtækin verða að fá hærri vexti, já, seðlabankavexti á lánin, annað gengur ekki, predikuðu ráðherrarnir. Af hverju? Jú, forsendurnar brustu. Lánin reyndust ólögleg (sem ráðherrarnir reyndar vissu löngu áður en málið kom fyrir dómstóla en kusu að gera – ekkert – og vörpuðu öndinni töluvert léttar við dóm hæstaréttar). Nú spyrja eggjakastararnir þessa sömu ráðherra: Hvernig má það vera að forsendubrestur virkar aðeins í aðra áttina? Ólögleg lán og lánveitandanum skal bættur skaðinn. Hrun hagkerfis og byrðarnar lagðar óskiptar á skuldugan almenning.
Dánaraðstoð: réttur fárra má ekki skaða aðra Þórhildur Kristinsdóttir,Arna Dögg Einarsdóttir,Sigurdís Haraldsdóttir,Hrönn Harðardóttir,Helga Tryggvadóttir,Guðrún Nína Óskarsdóttir Skoðun
Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun
Skoðun Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Dánaraðstoð: réttur fárra má ekki skaða aðra Þórhildur Kristinsdóttir,Arna Dögg Einarsdóttir,Sigurdís Haraldsdóttir,Hrönn Harðardóttir,Helga Tryggvadóttir,Guðrún Nína Óskarsdóttir skrifar
Skoðun Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Dánaraðstoð: réttur fárra má ekki skaða aðra Þórhildur Kristinsdóttir,Arna Dögg Einarsdóttir,Sigurdís Haraldsdóttir,Hrönn Harðardóttir,Helga Tryggvadóttir,Guðrún Nína Óskarsdóttir Skoðun
Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun