Sturla: Ungu strákarnir sýndu að þeir eru tilbúnir Smári Jökull Jónsson í Malmö Arena skrifar 8. desember 2010 20:49 Sturla í leik með Val,
Hornamaðurinn Sturla Ásgeirsson var nokkuð sáttur með niðurstöðuna úr leikjunum gegn Svíum og Norðmönnum á heimsbikarmótinu í Svíþjóð. „Það er gott að fá þessa leiki fyrir Heimsmeistaramótið og sjá hvar við stöndum. Það vantaði leikmenn í hópinn en það fá þá aðrir tækifæri í staðinn. Leikurinn í gær var ekkert sérstakur en við spiluðum betur í dag og allir að skila sínu hlutverki sem skilaði góðum sigri. Það voru ungir strákar með í þessu móti sem verða að sýna að þeir eru tilbúnir í þetta. Það er fínt að eiga þá inni og þeir eiga bara eftir að vaxa og dafna með árunum þannig að ég held að framtíðin hjá okkur sé nokkuð björt.“ Sturla hefur átt við meiðsli og stríða og er nýfarinn að spila á nýjan leik með Valsmönnum sem hafa átt erfitt uppdráttar í N1-deildinni. „Ég er eiginlega búinn að missa af öllum leikjum heima hingað til. Missti af öllum undirbúningum og búinn að spila að ég held fimm leiki með Val auk þessara tveggja með landsliðinu. Þannig að ég er að komast af stað eftir erfiðan og leiðinlegan tíma. Það er ágætt að skipta aðeins umhverfi og hitta strákana, verst að maður losnaði ekki við Óskar Bjarna (þjálfara Vals). Það er gott að bera sig saman við toppleikmenn í heiminum og sjá í hvaða formi maður er svo maður geti bætt það sem þarf að bæta ef maður ætlar sér að vera gjaldgengur fyrir mótið í janúar. Ég þarf bara að vinna í mínum málum og komast í enn betra stand, það er ekki spurning." Sturla sagði spenning í hópnum fyrir Heimsmeistaramótið og menn staðráðna í að blanda sér í baráttuna á toppnum þar. „Eftir þennan leik er maður nokkuð ánægður með stöðuna á liðinu. Auðvitað er margt sem þarf að slípa til og við fáum nánast engar æfingar fyrir þessa leiki. Þannig að það er kannski ekkert skrýtið að kerfin hafi aðeins verið ryðguð í leiknum gegn Svíum. Eftir einn leik eru menn aðeins búnir að slípast saman og það gekk betur í dag. Ef við vinnum vel í okkar málum og við mætum í toppstandi í janúar þá er ekkert því til fyrirstöðu að við blöndum okkur í toppbaráttuna á Heimsmeistaramótinu.“
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira