Viðskipti innlent

Mikill hugur í fulltrúum sprotafyrirtækja

300 manns sóttu ársfund Nýsköpunarmiðstöðvar sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica í morgun. Mikill hugur var í fulltrúum sprotafyrirtækja á fundinum og sögðu fimm frumkvöðlar á frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar frá góði gengi, þar á meðal leikjafyrirtækið Dexoris en Iphone tölvuleikur fyrirtækisins, Audiopuzzle, hefur verið valinn næstbesti tónlistarleikur ársins 2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu um fundinn. Þar segir ennig að þá hefur fyrirtækið Medical Algorithms, sem var stofnað rétt eftir hrun í janúar 2009, náð samningi við einn helsta dreifingaraðila heims á sviði lækningatækja um dreifingu á hugbúnaði til greiningar á heilariti.

Á fundinum var sjónum beint að skapandi greinum og mikilvægi fjölbreytni í atvinnulífinu og kom m.a. fram í máli Þorsteins Inga Sigfússonar, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar, að fjölbreytt atvinnulíf eykur framleiðni og auðveldar þjóðum að standast breytingar.

Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst fjallaði um hagræn áhrif menningar og benti á að á Íslandi er framlag menningar til landsframleiðslu um 4%, en til samanburðar er það 1% í landbúnaði og 6% í sjávarútvegi. Sagði hann jafnframt að skapandi atvinnugreinar og menningariðnaðurinn geta verið stóriðja Íslendinga á 21. öld.

Á meðal verkefna Nýsköpunarmiðstöðvar sem kynnt voru er stofnun sprotafyrirtækis um þróun og framleiðslu á háhitaeinangrun úr kísilryki fyrir íslensk álver. Með slíkri framleiðslu væri hægt að nýta innlent hráefni í iðnaðarferla, skapa störf og spara gjaldeyri, en slík háhitaeinangrun hefur hingað til verið flutt inn til landsins.

Þá var sagt frá því að Orkubú Vestfjarða, Nýsköpunarmiðstöð og fleiri aðilar munu setja upp litla osmósuvirkjun við Mjólká á Vestfjörðum á 200 ára ártíð Jóns Sigurðssonar 17. júní 2011.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×