Fullnægjandi lyktir í máli Geirs Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. ágúst 2010 14:00 Prestafélagið ætlar að funda um kynferðisbrotamál á mánudag.
Niðurstaða fundar Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, og Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, í morgun er fullnægjandi að mati Guðbjargar Jóhannesdóttur, formanns Prestafélags Íslands. Geir hafði verið gagnrýndur fyrir að segja í blaðagrein að hann teldi þagnaskyldu presta vera algera. Eftir fund hans og biskups í morgun lýsti sá síðarnefndi því yfir að Geir myndi hlýða tilkynningaskyldu. Guðbjörg telur að Geir hafi verið búinn að skýra mál sitt á fullnægjandi hátt í blaðagrein sem hann birti í Morgunblaðinu strax eftir helgi. „Hann hefur lýst því yfir að sannarlega muni hann fara að landslögum og hlíta ákvæðum barnaverndarlaga. Geir hefur hlýtt lögum hingað til og mun gera það áfram eins og hann sagði og það eru engar vísbendingar um að hann hafi brotið af sér með neinum hætti," segir Guðbjörg. Guðbjörg segir að Prestafélagið muni halda áfram að fjalla um kynferðisbrotamál. Haldinn verði almennur fundur í Prestafélaginu á mánudag þar sem slík mál verði rædd, einkum mál Ólafs Skúlasonar. „Svo munum við líka ræða það í hvaða farveg félagsfólk í Prestafélaginu telur að þetta verði að fara. Því að öll gerum við okkur grein fyrir því að það þarf að gera þetta mál upp með einhverjum hætti," segir Guðbjörg. Guðbjörg telur að það sé alger stuðningur við það að skipa sérstaka sannleiksnefnd um mál Ólafs Skúlasonar. Hins vegar eigi enn eftir að finna út úr því hvernig slík nefnd verði útfærð.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Sjá meira