Opið bréf til Guðbjarts Hannessonar Gabríela Unnur Kristjánsdóttir og Sigurður Kári Árnason skrifar 15. október 2010 06:00 Í viðtali á Bylgjunni þann 4. október sl. lýstir þú yfir furðu þinni á upphæð grunnframfærslu sveitarfélaganna en hún flakkar á milli 120-126 þúsund króna eftir sveitarfélögum. Nefndir þú að einn helsti þáttur þess að sporna gegn fátækt væri að hækka framfærsluna enda ekki raunhæft að áætla að 120 þúsund krónur dugi til að einstaklingar nái endum saman. Slíkri yfirlýsingu frá velferðarráðherra ber að fagna sem viðurkenningu um þá staðreynd að í dag er ekki hægt að ætlast til þess að einstaklingur geti framfleytt sér á 120 þúsund krónum á mánuði. Hins vegar felst í réttmætri gagnrýni þinni á sveitarfélögin ákveðin afneitun sem ráðherra í núverandi ríkisstjórn. Réttast væri að athuga fyrst hvaða grunnframfærslu samráðherrar þínir geri ráð fyrir að dugi einstaklingum. Lánasjóður íslenskra námsmanna er ríkisstofnun og er grunnframfærsla sjóðsins ákveðin í úthlutunarreglum hans sem menntamálaráðherra samþykkir. Byggist framfærslan að meginstefnu til á þeim fjárframlögum sem ákveðin eru í fjárlögum. Úthlutunarreglur LÍN gera ráð fyrir að grunnframfærsla einstaklings í leiguhúsnæði sé aðeins 120.720 kr. sem er einmitt sama upphæð og grunnframfærsla sveitarfélaganna. Það er því ljóst að sveitarfélögin geta skýlt sig á bak við þessi viðmið ríkisins um grunnframfærslu þegar þau er gagnrýnd. Í áraraðir hefur grunnframfærsla LÍN verið undir öllum velsæmismörkum. Framfærslugrunni sjóðsins hefur verið varpað fyrir róða og sjóðurinn þar með viðurkennt að námslánin byggjast ekki á framfærsluþörf einstaklings heldur því hversu miklu fjármagni honum er veitt hverju sinni. Stúdentar hafa ítrekað bent á að umrædd grunnframfærsla dugi hreinlega ekki en hafa ekki, fyrr en nú, fengið skýra viðurkenningu á því frá ráðamönnum þjóðarinnar. Líkt og fram hefur komið fögnum við orðum þínum en bendum þér og háttvirtum menntamálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, á að eðlilegast væri að ríkið sýndi fordæmi og lagfærði eigin grunnframfærslu áður en farið er að beina spjótum að sveitarfélögunum. Það er okkar einlæga von að þú fylgir orðum þínum eftir og beitir þér fyrir hækkun grunnframfærslu námslána. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Í viðtali á Bylgjunni þann 4. október sl. lýstir þú yfir furðu þinni á upphæð grunnframfærslu sveitarfélaganna en hún flakkar á milli 120-126 þúsund króna eftir sveitarfélögum. Nefndir þú að einn helsti þáttur þess að sporna gegn fátækt væri að hækka framfærsluna enda ekki raunhæft að áætla að 120 þúsund krónur dugi til að einstaklingar nái endum saman. Slíkri yfirlýsingu frá velferðarráðherra ber að fagna sem viðurkenningu um þá staðreynd að í dag er ekki hægt að ætlast til þess að einstaklingur geti framfleytt sér á 120 þúsund krónum á mánuði. Hins vegar felst í réttmætri gagnrýni þinni á sveitarfélögin ákveðin afneitun sem ráðherra í núverandi ríkisstjórn. Réttast væri að athuga fyrst hvaða grunnframfærslu samráðherrar þínir geri ráð fyrir að dugi einstaklingum. Lánasjóður íslenskra námsmanna er ríkisstofnun og er grunnframfærsla sjóðsins ákveðin í úthlutunarreglum hans sem menntamálaráðherra samþykkir. Byggist framfærslan að meginstefnu til á þeim fjárframlögum sem ákveðin eru í fjárlögum. Úthlutunarreglur LÍN gera ráð fyrir að grunnframfærsla einstaklings í leiguhúsnæði sé aðeins 120.720 kr. sem er einmitt sama upphæð og grunnframfærsla sveitarfélaganna. Það er því ljóst að sveitarfélögin geta skýlt sig á bak við þessi viðmið ríkisins um grunnframfærslu þegar þau er gagnrýnd. Í áraraðir hefur grunnframfærsla LÍN verið undir öllum velsæmismörkum. Framfærslugrunni sjóðsins hefur verið varpað fyrir róða og sjóðurinn þar með viðurkennt að námslánin byggjast ekki á framfærsluþörf einstaklings heldur því hversu miklu fjármagni honum er veitt hverju sinni. Stúdentar hafa ítrekað bent á að umrædd grunnframfærsla dugi hreinlega ekki en hafa ekki, fyrr en nú, fengið skýra viðurkenningu á því frá ráðamönnum þjóðarinnar. Líkt og fram hefur komið fögnum við orðum þínum en bendum þér og háttvirtum menntamálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, á að eðlilegast væri að ríkið sýndi fordæmi og lagfærði eigin grunnframfærslu áður en farið er að beina spjótum að sveitarfélögunum. Það er okkar einlæga von að þú fylgir orðum þínum eftir og beitir þér fyrir hækkun grunnframfærslu námslána.
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar