Handbolti

Löwen komið í bikarúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen tryggði sig í dag inn í úrslit þýsku bikarkeppninnar í handknattleik með auðveldum sigri á Gummersbach, 31-21.

Löwen betra liðið allan leikinn og leiddi með fjórum mörkum í leikhléi, 14-10. Gummersbach spriklaði í upphafi síðari hálfleiks en Löwen hristi liðið af sér jafn harðan.

Snorri Steinn Guðjónsson og Ólafur Stefánsson áttu báðir mjög góðan leik fyrir Löwen og skoruðu fjögur mörk. Róbert Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Gummersbach.

Löwen mætir annað hvort Hamburg eða TuS N Lubbecke í úrslitaleiknum í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×