Varúlfar alltaf jafn vinsælir 11. febrúar 2010 05:00 þjóðsagnaverur í bíó Benecio Del Toro fer með aðalhlutverkið í The Wolfman sem <B>Stefán Jörgen </B>starfaði við. <B>Jack Nicholson</B> fór á kostum í myndinni Wolf, rétt eins og <B>Michael J. Fox</B> í Teen Wolf.
Varúlfar eru þjóðsagnaverur sem hafa löngum verið vinsælt umfjöllunarefni í Hollywood. The Wolfman með Benicio Del Toro í aðalhlutverki er nýjasta dæmið um það. Leikstjóri The Wolfman er Joe Johnston sem hefur áður sent frá sér myndir á borð við Honey I Shrunk The Kids, October Sky og Hidalgo. Auk Benicio Del Toro fara með helstu hlutverk þau Emily Blunt, Anthony Hopkins og Hugo Weavin. The Wolfman er endurgerð samnefndrar myndar frá árinu 1941 og fjallar um Lawrence Talbot (Benicio Del Toro) sem snýr aftur til heimabæjar síns eftir að bróðir hans týnist. Fljótlega kemst hann að því að einhver ógurleg skepna er byrjuð að stráfella bæjarbúa. Varúlfur er heiti á manni sem getur brugðið sér í úlfslíki eða haft hamskipti án þess að vilja það endilega sjálfur og þá oftast vegna einhvers konar álaga. Hamskiptin eiga sér yfirleitt stað á fullu tungli og í flestum varúlfamyndum er sýnt hvernig þau eiga sér stað. Fjallað hefur verið um varúlfa nánast frá upphafi kvikmyndasögunnar, fyrst í myndinni Werewolf of London sem kom út árið 1935 á vegum Universal. Sex árum síðar framleiddi fyrirtækið sína aðra varúlfamynd, The Wolfman, sem hefur nú verið endurgerð. Hún fékk mun betri viðtökur og hefur haft mikil áhrif á þær varúlfamyndir sem hafa fylgt í kjölfarið. Árið 1981 komu út tvær varúlfamyndir sem slógu í gegn. Annars vegar The Howling, sem gat af sér hvorki meira né minna en sex framhaldsmyndir, og hins vegar American Werewolf in London sem fjallaði um tvo bandaríska ferðamenn sem verða fyrir árás varúlfs. Framhald hennar kom svo út sextán árum síðar við heldur dræmari undirtektir. Jack Nicholson var skemmtilegur varúlfur í hinni gamansömu spennumynd Wolf. Þar lék hann bókaútgefanda sem er bitinn af varúlfi með áhugaverðum afleiðingum. Annar sniðugur varúlfur var Michael J. Fox í Teen Wolf sem var sýnd við miklar vinsældir um miðjan níunda áratuginn. En aftur að hinni endurgerðu The Wolfman, því íslenski förðunarmeistarinn Stefán Jörgen starfaði við myndina eftir að Rick Baker, sexfaldur Óskarsverðlaunahafi í förðun, óskaði eftir kröftum hans. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í ágúst síðastliðnum hafði Stefán mjög gaman af verkefninu en hitti þó enga af stjörnunum sem leika í myndinni. Annars má geta þess að það tók rúmar þrjár klukkustundir að farða Del Toro fyrir hlutverkið og eina í viðbót til að taka farðann af. Hárbeittar gervitennur og úfnar, svartar hárkollur komu einnig við sögu til að útkoman yrði nú sem allra eðlilegust. Úlfamyndir bíóÚlfamyndir bíóf
Mest lesið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Fleiri fréttir „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Sjá meira