Þórir Evrópumeistari með Noregi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. desember 2010 17:22 Nordic Photos / AFP
Noregur varð í dag Evrópumeistari í handbolta eftir sigur á Svíum í úrslitaleik í Herning í Danmörku, 25-20. Þórir Hergeirsson er landsliðsþjálfari Noregs og vann í dag sinn fyrsta titil sem aðalþjálfari liðsins. Hann var í mörg ár aðstoðarþjálfari Marit Breivik en undir stjórn hennar vann norska liðið marga stórtitla. Þetta er í fjórða sinn í röð sem Noregur verður Evrópumeistari og í fimmta sinn frá upphafi. Liðið tryggði sér einnig með sigrinum þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Lundúnum árið 2012. Svíar voru sterkari í fyrri hálfleik í dag og náðu mest þriggja marka forystu. Norðmenn skoruðu hins vegar tvö síðustu mörk hálfleiksins og staðan að honum loknum var 11-10. Norðmenn keyrðu svo yfir Svía í upphafi síðari hálfleiks og þegar staðan var orðin 19-13 eftir stundarfjórðung var ljóst í hvað stefndi. Þær norsku gáfu lítið eftir og unnu sem fyrr segir öruggan sigur. Noregur hefur nú unnið nítján sinnum til verðlauna á stórmótum í handbolta en liðið hefur einu sinni orðið heimsmeistari, árið 1999, og einu sinni Ólympíumeistari, árið 2008. Þórir tók við sem aðalþjálfari í fyrra og vann bronsverðlaun með norska liðinu á HM í Kína í fyrra.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira