Ná Haukakonur að leika sama leik og í fyrra? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2010 15:45 Erlendu leikmenn Haukaliðsins Heather Ezell og Kiki Lund. Mynd/Heimasíða Hauka
Kvennalið Hauka í körfubolta hefur fengið góðan liðstyrk því danska landsliðskonan Kiki Lund mun spila með Íslandsmeisturunum út tímabilið. Lund er 26 ára skytta sem hefur leikið á Spáni undanfarið eina og hálfa árið. Haukar eru því fyrsta liðið í Iceland Express deild kvenna sem teflir fram tveimur erlendum leikmönnum í vetur. Haukar léku sama leik í fyrra með góðum árangri en liðið bætti þá við sig erlendum leikmanni eftir áramót og tryggði sér síðan Íslandsmeistaratitilinn. Haukaliðið er nú í 6. sæti með 4 sigra í 11 leikjum en hefur tapað fjórum þeirra naumt og það hefur því vantað lítið upp á að liðið væri miklu ofar í töflunni. Kiki Lund varð kosin besti leikmaður dönsku deildarinnar 2003-04 þegar hún spilaði með Horsnes Pirates og spilaði síðan í fjögur ár með Dayton-skólanum í bandaríska háskólaboltanum. Lund var með 16,5 stig, 3,4 fráköst og 2,8 stoðsendingar að meðaltali síðasta tímabil sitt með Horsens. Lund var með 5,8 stig, 1,3 frákast og 1,5 stoðsendingar í leik með Dayton-skólanum en hún skoraði 154 þriggja stiga körfur í 120 leikjum með skólanum og nýtti meira 39 prósent langskota sinna. Lund lék á síðustu leiktíð með liði Iniexsa Cáceres í spænsku b-deildinni þar sem að hún var með 9,3 stig, 2.5 fráköst og 1,5 stoðsendingu í leik en hún hitti þá úr 77 af 179 þriggja stiga skotum sínum í 30 leikjum sem gerir 3 prósent nýtingu. Lund lék fyrir áramót með Arranz Jopisa Burgos í spænsku b-deildinni þar sem hún var með 2,5 stig að meðaltali á 10,3 mínútum í leik.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Íslenski boltinn Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Kvenkyns dómari slasaðist í slagsmálum í vináttuleik Fótbolti Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fleiri fréttir Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Sjá meira