Lífið

„I hate Iceland“-gaurinn orðinn allsherjar netbrandari

Skotinn viðurkenndi með semingi að hann hefði verið búinn að fá sér í tánna áður en hann tróð sér í sjónvarpið.
Skotinn viðurkenndi með semingi að hann hefði verið búinn að fá sér í tánna áður en hann tróð sér í sjónvarpið.

„Ég hef aldrei verið jafn stoltur af sjálfum mér,“ sagði Skotinn sem komst í heimsfréttirnar í kjölfar þess að flugvellir lokuðu eftir eldgosið í Eyjafjallajökli. Hann tróð sér í viðtal á Sky og öskraði að hann hataði Ísland. Þetta vakti mikla athygli og honum var kippt í útvarpsviðtal í kjölfarið.

Tveimur vikum seinna lifir fimmtán mínútna frægð Skotans enn góðu lífi á YouTube. Nú eru Netverjar byrjaðir að nota setninguna hans til að búa til alls kyns lög og brandara. Alls eru nú komin um 75 myndbönd með Skotanum á YouTube en þau eru flest með dúndrandi danstónlist undir setningunni frægu.

Einn notandi snýr setningunni þó upp í „I hate Aslan“ og setur hana yfir dramatískt atriði þar sem ljónið Aslan deyr í myndinni Ljónið, nornin og skápurinn. Breska stjarnan Kelly Cantona, sem er talsmaður auglýsingakeðjunnar Iceland, er síðan blönduð inn í sum myndböndin. Í einu er storkur látinn segja orðin, í öðru er búið að setja Sky-viðtalið upp í tölvuleiknum Modern Warfare 2 og þar fram eftir götunum.

Alls hafa um tvær milljónir manna nú horft á þessi myndbönd en setningin  „Ég hata Ísland“ hefur hljómað margfalt oftar í hátölurum út um allan heim.

Nokkur myndbandanna á YouTube:

I hate Iceland Sparta Remix

I hate Iceland Modern Warfare



I hate Iceland storkur






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.