Ríkissaksóknari óttaðist reiði almennings SB skrifar 28. júní 2010 17:39 Af heimasíðu Ríkissaksóknara. Upplýsingarnar í Daníelsslippsmálinu er þar enn að finna.
Persónuvernd hefur úrskurðað að Ríkissaksóknara beri að afmá rannsóknarskjöl um lát tveggja manna í Daníelsslipp af heimasíðu embættisins. Ríkissaksóknari birti skjölin í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttsins Kompáss um málið en ættingjar mannana tveggja sættu sig ekki við þau málalok að mennirnir hefðu svipt sig lífi í bílnum. Í úrskurði Persónuverndar segir Ríkissaksóknari að gögnin hafi verið birt, meðal annars vegna ótta við aðgerðir almennings, en mikil reiði hafi verið í samfélaginu í kjölfar hrunsins. Ríkissaksóknari hefur enn ekki fjarlægt gögnin, þrátt fyrir úrskurð Persónuverndar þess efnis. Forsaga málsins er sú að Ríkissaksóknari fór þess á leit við lögregluna að rannsókn yrði hafin á nýju á láti Einars Þórs Agnarssonar og Sturlu Sveinssonar. Þeir fundust látnir í bíl við Daníelsslipp þann 1. mars 1985. Krafa Ríkissaksóknara kom í kjölfar þrýstings frá ættingjum og almenningi. Fjallað var um áralanga baráttu ættingjanna við að fá málið tekið upp að nýja, bæði í DV og Kompási og að lokum lét Ríkissaksóknari undan. Í úrskurði Persónuverndar segir Ríkissaksóknari að þær rangfærslur og ásakanir sem opinberlega voru settar fram hafi verið alvarlegar fyrir embættið, "enda ríkissaksóknari og lögregla þar sökum um slæleg vinnubrögð og nánast samsæri til að koma í veg fyrir rannsókn á alvarlegum glæp." Fullyrðingar aðstandenda hafi gengið þvert á staðreyndir málsins. "Ríkissaksóknari taldi að ásakanir sem þessar væru til þess fallnar að auka vantrú og valda reiði og tortryggni í garð umræddra yfirvalda." Þess vegna ákvað Ríkissaksónknari að birta frumgögn rannsóknar á heimasíðu embættisins. En svo virðist sem aðstandendur í málinu hafi ekki sætt sig við þá birtingu þar sem um viðkvæmar persónuupplýsingar var um að ræða; meðal annars krufningsskýrslur og frumgögn í málinu, sem einnig hafi ratað til fjölmiðla. Ríkissaksóknari segir í úrskurðinum að embættið hafi talið það skyldu sína að upplýsa almenning um staðreyndir málsins, sem hafi verið gert með birtingu gagnanna. "Það að fella út kafla úr niðurstöðunni yrði aðeins til að sá tortryggni eins og komið var," segir Ríkissaksóknari, og ennfremur: "Slíkt hefði ekki síður verið alvarlegt eftir hrun bankakerfisins þar sem reiði almennings gat brotist út af minnsta tilefni með alvarlegum afleðingum." Þrátt fyrir að Persónuvernd hafi úrskurðað að birting gagnanna stangist á við lög um Persónuvernd og krafið Ríkissaksóknara að fjarlægja gögnin af vef sínum hefur Ríkissaksóknari ekki orðið við því. Gögnin má enn finna á heimasíðu embættisins.
Mest lesið Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Sjá meira