NBA: Líflína hjá Orlando Magic Hjalti Þór Hreinsson skrifar 25. maí 2010 09:00 Dwight Howard stelur boltanum af Paul Pierce í nótt. AP
Strákarnir í Orlando Magic björguðu andlitinu í úrslitarimmunni við Boston Celtics með því að klóra í bakkann í nótt. Eftir 96-92 sigur í framlengdum leik er staðan í einvíginu 3-1 fyrir Boston. Leikurinn var skemmtilegur áhorfs þar sem bæði lið gerðu mörg mistök og sýndu frábær tilþrif. Dwight Howard skoraði 32 stig fyrir Orlando og tók 16 fráköst á meðan Jameer Nelson sallaði niður 23 stigum og gaf 9 stoðsendingar. Paul Pierce skoraði 32 stig fyrir Boston og tók 9 fráköst og Ray Allen skoraði 22. Leikurinn var jafn nánast allan tímann. Orlando var 32-26 yfir eftir fyrsta leikhluta og Boston var svo fjórum stigum yfir í hálfleik, 47-51. Einu stigi munaði á liðunum fyrir síðasta leikhlutann sem var æsispennandi. Pierce jafnaði metin í 86-86 þegar rúm mínúta var eftir þegar hann keyrði að körfunni, skoraði og fékk víti að auki. Rondo stal svo boltanum fyrir Boston en hvorugt liðið náði að skora meira í leikhlutanum, Pierce og Nelson klikkuðu báðir á skotum. Í framlengingunni hafði Orlando svo betur. Það tók reyndar helming hennar til að fá fyrstu stigin þegar Nelson skoraði þriggja stiga körfu, og hann gerði svo aðra í næstu sókn eftir að Boston hafði mistekist að skora. Tvær risakörfur hjá kappanum. Allen svaraði með tveimur þriggja stiga körfum en í millitíðinni skoraði Howard. 94-92 og rúm mínúta eftir. Howard skoraði aftur, 96-92, og Boston skoraði ekki meira þrátt fyrir nokkur skot. Orlando gerði vel í að klára leikinn en þarf nánast kraftaverk til að gera seríuna spennandi. Þó er aldrei að vita ef liðið vinnur fimmta leikinn, sem ætti að vera æsispennandi líka.
NBA Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Einn sá besti færir sig um set Sport Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira