Helena í hópi 45 bestu háskólaleikmanna Bandaríkjanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2010 12:00 Helena Sverrisdóttir gengur hér af velli eftir tap í síðasta leik tímabilsins. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir fékk mikla viðurkenningu í gær þegar Fréttastofan Associated Press valdi úrvalslið ársins í bandaríska háskólaboltanum. Helena var í hópi þeirra leikmenn sem voru næstir því að komast inn í úrvalsliðin þrjú. Viðurkenningin heitir á ensku "All-America honorable-mention" en fimmtán bestu leikmenn landsins komast í úrvalsliðin þrjú en næstu þrjátíu leikmenn fá síðan þessa sérstöku viðurkenningu. Helena er því í hópi 45 bestu háskólaleikmanna Bandaríkjanna sem er mikill heiður fyrir hana. Helena átti mjög gott tímabil með TCU liðinu sem vann deildarkeppni Mountain West en náði ekki að fylgja því eftir í úrslitakeppni Mountain West eða úrslitakeppni NCAA. Helena fékk engu að síður náð fyrir augum valnefndarinnar. Helena leiddi TCU-liðið í bæði stoðsendingum (5,2 í leik) og stolnum boltum (2,2) og hún var í öðru sæti í liðinu í stigaskori (13.5) og fráköstum (6,5). Helena gaf alls 161 stoðsendingu á tímabilinu og hafa aðeins tveir leikmenn í sögu skólans náð að gefa jafnamargar stoðsendingar á einu ári. Helena er ennfremur þriðja leikmaðurinn í sögu TCU sem fær svona viðurkenningu frá Associated Press en hinar tvær, Sandora Irvin og Adrianne Ross, voru báðar valdar inn í WNBA-deildina.
Körfubolti Mest lesið Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Körfubolti Biðin eftir Meistaravöllum styttist um einn dag Fótbolti Bradley Beal til Clippers Körfubolti Eyjakonur gjörsigruðu Gróttu Fótbolti Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Arnar Grétarsson tekinn við Fylki Fótbolti Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Sport Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Golf Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Bellingham í aðgerð á öxl og missir af næstu landsleikjum Fótbolti Fleiri fréttir Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Bradley Beal til Clippers Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Elvar Már til Póllands Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sjá meira